Back to results

Agricultural University of Iceland

Nærumhverfi geðdeilda - Gróður er nærandi

Abstract

dc:description.abstract

Þessi heimildaritgerð er lokaverkefni til B.S. prófs í umhverfisskipulagi frá Landbúnaðar-háskóla Íslands. Hún fjallar um umhverfi tveggja geðdeilda í Reykjavík en það eru Geðdeild Landspítalans við Hringbraut og Geðdeild Landspítalans á Kleppi. Ritgerðin fjallar um hvort og þá hvernig umhverfi skiptir máli fyrir líðan manna og þá sérstaklega fyrir líðan og batahorfur geðsjúkra. Saga og aðstæður geðsjúkra í gegnum árin eru skoðaðar og eins er sjónum beint að tengslum manns og náttúru og hlutverki umhverfis í líðan og hugsanlega bættri heilsu manna. Erlendis, bæði austanhafs og vestan, hefur orðið mikil þróun eða vakning meðal landslagsarkitekta og umhverfisskipulagsfræðinga varðandi umhverfi sjúkrastofnanna og mikið lagt í rannsóknir hvað það varðar. Fjallað er um þá þætti í ritgerðinni, sagt frá hugmynd að heilsugarði í Hveragerði og frá umhverfi geðsjúkrahúss í Kanada og hvernig þeir nýta umhverfið sem meðferðarúrræði. Umhverfi tveggja geðdeilda í Reykjavík er tekið út og greint. Grunnniðurstaðan er að umhverfi hefur greinileg áhrif á líðan og heilsu manna til hins betra, og að umhverfi þessara tveggja geðdeilda geri lítið sem ekkert til að bæta heilsu og líðan þeirra sjúklinga sem þar dvelja.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Erla Þórðardóttir 1988-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/13232
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/13232

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Erla Þórðardóttir 1988-. Nærumhverfi geðdeilda - Gróður er nærandi. 2012. http://hdl.handle.net/1946/13232