Back to results

Agricultural University of Iceland

Að byggja brú milli virkjunarframkvæmdar og ferðaþjónustu

Abstract

dc:description.abstract

Markmiðið með þessu verkefni var að kanna hvort mannvirki og áhrifasvæði iðnaðarframkvæmda hafa upp á að bjóða möguleika til að skapa áfangastað fyrir ferðamenn og íbúa í næsta nágrenni. Þessir möguleikar voru kannaður út frá hugmyndafræði Christophe Girot. Þar leggur hann áherslu á að í hverju landslagi felist tækifæri sem mikilvægt er að nýta áfram í skipulagsvinnu svæðisins. Í upphafi voru skoðuð fordæmi fyrir samspili ferðaþjónustu og iðnaðarframkvæmda, bæði íslensk og erlend. Þá var borið stuttlega saman ólík viðhorf hérlendis og erlendis til landfreka iðnaðarframkvæmda. Iðnaðarframkvæmdin sem lögð var áhersla á í þessu verkefni var Urriðafossvirkjun í Þjórsár og áhrifasvæði hennar. Svæðið var kannað útfrá fyrrnefndri hugmyndafræði og í lokin voru lagðar fram hönnunarforsendur fyrir svæðið þar sem virkjunin og ferðaþjónusta spila saman sem ein heild. Þar var lagt til að þau mannvirki virkjunarinnar, sem eru hvað mest áberandi í landslaginu, verði nýtt til að koma fyrir gönguleiðum og útsýnisstöðum en mjög víðsýnt er á svæðinu. Einnig voru lagðar fram hugmyndir um að hanna útivistarsvæði með upplýstum gönguleiðum, nýta bergið í farvegi Þjórsár til að koma fyrir torgum og gönguleiðum og einnig að undirstrika gömlu Þjórsárbrúnna sem er mikið kennileiti á svæðinu. Með þessum hönnunarforsendum er hægt að skapa áhugaverðan og eftirminnilegan áfangastað fyrir ferðamenn auk þess að stuðla að bættum lífsgæðum fyrir íbúa í nágrenni virkjunarinnar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Erla Björg Aðalsteinsdóttir 1987-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/13231
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/13231

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Erla Björg Aðalsteinsdóttir 1987-. Að byggja brú milli virkjunarframkvæmdar og ferðaþjónustu. 2012. http://hdl.handle.net/1946/13231