Back to results

Agricultural University of Iceland

Lambadómar - Samræmi í mælingum og dómum

Abstract

dc:description.abstract

Mælingar og dómar líflamba eru mikilvægur þáttur í vali líflamba. Því var talin þörf á að rannsaka hversu mikið samræmi er á milli ráðunauta við mælingar og dóma á líflömbum. Í verkefninu voru leiddir saman sjö reyndir dómarar og þeir mældu og fullstiguðu 140 lömb, og niðurstöður þeirra bornar saman. Einnig var skoðað hversu vel dómarar eru samkvæmir sínum fyrri dómum. Ómmælingarnar staðfestu þann mun á mælingum sem reiknað hefur verið með á milli hollenskra og skoskra mælitækja. Að meðaltali var ómvöðvinn um 27 mm og mismunur meðaltala milli tækjagerðanna 1,97 mm. Tvímælingagildi fyrir mælda eiginleika reyndist vera yfir 0,70 nema fyrir ómmælingar á fitu sem reyndist vera 0,51. Tvímælingagildi dæmdra eiginleika var öllu lægra og lá á bilinu 0,36 til 0,68. Þessi rannsókn sýnir að það er yfirleitt gott samræmi á milli ráðunauta við dómstörfin en þó er marktækur munur meðaltala við dóma á einstökum eiginleikum milli dómara. Ómmælingar á bakvöðva, mælingar á fótlegg, og dómar fyrir bak, læri, ull og stig alls koma mjög vel út og eru metin af nákvæmni, aðra eiginleika virðist vera erfiðara að meta.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kristbjörn Haukur Steinarsson 1968-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/12442
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/12442

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kristbjörn Haukur Steinarsson 1968-. Lambadómar - Samræmi í mælingum og dómum. 2012. http://hdl.handle.net/1946/12442