{"id":{"repo_id":"ag-u-iceland","oai_identifier":"oai:skemman.is:1946/10855"},"canonical_url":"https://search.dev.ndltd.org/etd/ag-u-iceland/oai:skemman.is:1946/10855","repository":{"repo_id":"ag-u-iceland","name":"Agricultural University of Iceland","base_url":"https://skemman.is/oai/request"},"display":{"title":"Neðri hluti Hvítár í Borgarfirði: kortlagning flóðs 2006","abstract":"Í kjölfar mikilla úrkomu- og leysingaflóða í desember árið 2006 var Vatnamælingum Orkustofnunar falið að kortleggja útbreiðslu flóðanna og afla heimilda um eldri flóð. B.Sc. verkefni þetta var liður í gagnaöflun Vatnamælinga Orkustofnunar. Markmið verkefnisins var að kortleggja útbreiðslu flóðsins 2006 fyrir afmarkað svæði við Hvítá í Borgarfirði og afla heimilda um eldri flóð. Leitast var við að svara því hvort flóðið 2006 hefði verið það stærsta á svæðinu eða hvort búast mætti við stærri flóðum á svæðinu. Áhrif veðurfarsþátta og sjávarfalla var skoðuð í samhengi við sögulegar flóðhæðir. Gögn voru fengin frá Vatnamælingum Orkustofnunar, Samsýn ehf., Veðurstofu Íslands og Landhelgisgæslunni. Útbreiðsla flóðsins 2006 var kortlögð í ArcGIS forriti með ýmsum gögnum og heimildum um útbreiðslu flóðsins, t.d. GPS mælingum á flóðförum (rek í landi eftir flóðvatn). Munnlegar heimildir landeigenda voru skráðar, bæði um flóðið 2006 og önnur söguleg flóð. Mælingar úr vatnshæðarmælum í Borgarfirði voru notaðar til að bera saman flóð árin 1971, 1983, 1992 og síðan 2006. Leitað var heimilda um söguleg flóð í skýrslusafni Vatnamælinga Orkustofnunar, bókasafni og blaðagreinum Morgunblaðsins á síðu Landsbókasafns Íslands (www.timarit.is) með leitarorðum sem tengdust flóðum og kennileitum á svæðinu. Stuðst var við þær niðurstöður til að setja upp yfirlit yfir flóð í Hvítá í Borgarfirði. Helstu niðurstöður verkefnisins voru að flóðið 2006 var ekki það stærsta sem hefur komið á svæðinu og því má vænta stærri flóða í náinni framtíð. Nákvæmni hæðargagna reyndis ekki nægileg til að gera áreiðanlegt hæðarlíkan af svæðinu og þannig álykta útbreiðslu sögulegra flóða. Engu skipulagi stendur ógn af útbreiðslu flóða í neðri hluta Hvítár, en áhrif flóða á fyrirhugaða hreinsistöð fráveitu á Hvanneyri eru ekki talin mikil. Á svæðinu eru bæir sem iðulega verða umflotnir í flóðum og var Ferjukot skoðaður sérstaklega í þessu verkefni. Samanburður á sögulegum flóðhæðum áður nefndra ára leiddi í ljós að mesta vatnshæð varð í flóðinu 1983, áhrif sjávarfalla gætir þegar stórstreymi er og frostakaflar fara minnkandi sem og snjóalög en þessir þættir hafa áhrif á afrennsli á frosinni jörð og leysingarvatn í úrkomu- og leysingaflóðum, þeirri tegund flóða sem var til skoðunar í þessu verkefni. Ályktað er að niðurstöður þessa verkefnis verði nýttar til skipulagsgerðar í Borgarbyggð í framtíðinni og verði til þess að nákvæmar hæðarmælingar verði gerðar á svæðinu til að fá nákvæmari gögn til hæðarlíkanagerðar. Einnig er lagt til að unnið verði áfram að öflun gagna um flóð í Borgarfirði umfram það svæði sem var tekið til skoðunar í þessu verkefni þar sem byggð á láglendi er til staðar á bökkum Hvítár í Borgarfirði og þverám hennar.","abstract_html":"Í kjölfar mikilla úrkomu- og leysingaflóða í desember árið 2006 var Vatnamælingum Orkustofnunar falið að kortleggja útbreiðslu flóðanna og afla heimilda um eldri flóð. B.Sc. verkefni þetta var liður í gagnaöflun Vatnamælinga Orkustofnunar. Markmið verkefnisins var að kortleggja útbreiðslu flóðsins 2006 fyrir afmarkað svæði við Hvítá í Borgarfirði og afla heimilda um eldri flóð. Leitast var við að svara því hvort flóðið 2006 hefði verið það stærsta á svæðinu eða hvort búast mætti við stærri flóðum á svæðinu. Áhrif veðurfarsþátta og sjávarfalla var skoðuð í samhengi við sögulegar flóðhæðir. Gögn voru fengin frá Vatnamælingum Orkustofnunar, Samsýn ehf., Veðurstofu Íslands og Landhelgisgæslunni. Útbreiðsla flóðsins 2006 var kortlögð í ArcGIS forriti með ýmsum gögnum og heimildum um útbreiðslu flóðsins, t.d. GPS mælingum á flóðförum (rek í landi eftir flóðvatn). Munnlegar heimildir landeigenda voru skráðar, bæði um flóðið 2006 og önnur söguleg flóð. Mælingar úr vatnshæðarmælum í Borgarfirði voru notaðar til að bera saman flóð árin 1971, 1983, 1992 og síðan 2006. Leitað var heimilda um söguleg flóð í skýrslusafni Vatnamælinga Orkustofnunar, bókasafni og blaðagreinum Morgunblaðsins á síðu Landsbókasafns Íslands (www.timarit.is) með leitarorðum sem tengdust flóðum og kennileitum á svæðinu. Stuðst var við þær niðurstöður til að setja upp yfirlit yfir flóð í Hvítá í Borgarfirði. Helstu niðurstöður verkefnisins voru að flóðið 2006 var ekki það stærsta sem hefur komið á svæðinu og því má vænta stærri flóða í náinni framtíð. Nákvæmni hæðargagna reyndis ekki nægileg til að gera áreiðanlegt hæðarlíkan af svæðinu og þannig álykta útbreiðslu sögulegra flóða. Engu skipulagi stendur ógn af útbreiðslu flóða í neðri hluta Hvítár, en áhrif flóða á fyrirhugaða hreinsistöð fráveitu á Hvanneyri eru ekki talin mikil. Á svæðinu eru bæir sem iðulega verða umflotnir í flóðum og var Ferjukot skoðaður sérstaklega í þessu verkefni. Samanburður á sögulegum flóðhæðum áður nefndra ára leiddi í ljós að mesta vatnshæð varð í flóðinu 1983, áhrif sjávarfalla gætir þegar stórstreymi er og frostakaflar fara minnkandi sem og snjóalög en þessir þættir hafa áhrif á afrennsli á frosinni jörð og leysingarvatn í úrkomu- og leysingaflóðum, þeirri tegund flóða sem var til skoðunar í þessu verkefni. Ályktað er að niðurstöður þessa verkefnis verði nýttar til skipulagsgerðar í Borgarbyggð í framtíðinni og verði til þess að nákvæmar hæðarmælingar verði gerðar á svæðinu til að fá nákvæmari gögn til hæðarlíkanagerðar. Einnig er lagt til að unnið verði áfram að öflun gagna um flóð í Borgarfirði umfram það svæði sem var tekið til skoðunar í þessu verkefni þar sem byggð á láglendi er til staðar á bökkum Hvítár í Borgarfirði og þverám hennar.","abstract_has_math":false,"creators":["María Theodórsdóttir 1984-"],"institution":null,"degree_name":null,"degree_level":null,"degree_discipline":null,"degree_department":null,"school":null,"contributors":["Landbúnaðarháskóli Íslands"],"advisors":[],"committee_chairs":[],"committee_members":[],"year":2012,"date_issued":"2012-02-21","date_published":"2012-02-21","updated_at":"2026-07-27T18:39:44Z","subjects":["Borgarfjörður","Hvítá","Vatnamælingar"],"languages":["is"],"rights":[],"rights_urls":[],"identifier_entries":[]},"links":{"outbound_url":"http://hdl.handle.net/1946/10855","outbound_label":"Handle","outbound_source":"dc:identifier.uri"},"metadata_groups":[{"id":"people","label":"People","entries":[{"key":"dc:contributor","label":"Contributor","values":["Landbúnaðarháskóli Íslands"]},{"key":"dc:creator","label":"Author","values":["María Theodórsdóttir 1984-"]}]},{"id":"academic_context","label":"Academic Context","entries":[{"key":"dc:date.accessioned","label":"Dc Date Accessioned","values":["2012-02-21T13:16:08Z"]},{"key":"dc:date.available","label":"Dc Date Available","values":["2012-02-21T13:16:08Z"]},{"key":"dc:date.issued","label":"Date","values":["2012-02-21"]},{"key":"dc:type","label":"Dc Type","values":["Thesis"]}]},{"id":"subjects_keywords","label":"Subjects and Keywords","entries":[{"key":"dc:subject","label":"Dc Subject","values":["Borgarfjörður","Hvítá","Vatnamælingar"]}]},{"id":"language_rights","label":"Language and Rights","entries":[{"key":"dc:language.iso","label":"Language (ISO)","values":["is"]}]},{"id":"identifiers","label":"Identifiers","entries":[{"key":"dc:identifier.uri","label":"Identifier URI","values":["http://hdl.handle.net/1946/10855"]}]},{"id":"additional","label":"Additional Metadata","entries":[{"key":"dc:description.abstract","label":"Abstract","values":["Í kjölfar mikilla úrkomu- og leysingaflóða í desember árið 2006 var Vatnamælingum Orkustofnunar falið að kortleggja útbreiðslu flóðanna og afla heimilda um eldri flóð. B.Sc. verkefni þetta var liður í gagnaöflun Vatnamælinga Orkustofnunar. Markmið verkefnisins var að kortleggja útbreiðslu flóðsins 2006 fyrir afmarkað svæði við Hvítá í Borgarfirði og afla heimilda um eldri flóð. Leitast var við að svara því hvort flóðið 2006 hefði verið það stærsta á svæðinu eða hvort búast mætti við stærri flóðum á svæðinu. Áhrif veðurfarsþátta og sjávarfalla var skoðuð í samhengi við sögulegar flóðhæðir. Gögn voru fengin frá Vatnamælingum Orkustofnunar, Samsýn ehf., Veðurstofu Íslands og Landhelgisgæslunni. Útbreiðsla flóðsins 2006 var kortlögð í ArcGIS forriti með ýmsum gögnum og heimildum um útbreiðslu flóðsins, t.d. GPS mælingum á flóðförum (rek í landi eftir flóðvatn). Munnlegar heimildir landeigenda voru skráðar, bæði um flóðið 2006 og önnur söguleg flóð. Mælingar úr vatnshæðarmælum í Borgarfirði voru notaðar til að bera saman flóð árin 1971, 1983, 1992 og síðan 2006. Leitað var heimilda um söguleg flóð í skýrslusafni Vatnamælinga Orkustofnunar, bókasafni og blaðagreinum Morgunblaðsins á síðu Landsbókasafns Íslands (www.timarit.is) með leitarorðum sem tengdust flóðum og kennileitum á svæðinu. Stuðst var við þær niðurstöður til að setja upp yfirlit yfir flóð í Hvítá í Borgarfirði. Helstu niðurstöður verkefnisins voru að flóðið 2006 var ekki það stærsta sem hefur komið á svæðinu og því má vænta stærri flóða í náinni framtíð. Nákvæmni hæðargagna reyndis ekki nægileg til að gera áreiðanlegt hæðarlíkan af svæðinu og þannig álykta útbreiðslu sögulegra flóða. Engu skipulagi stendur ógn af útbreiðslu flóða í neðri hluta Hvítár, en áhrif flóða á fyrirhugaða hreinsistöð fráveitu á Hvanneyri eru ekki talin mikil. Á svæðinu eru bæir sem iðulega verða umflotnir í flóðum og var Ferjukot skoðaður sérstaklega í þessu verkefni. Samanburður á sögulegum flóðhæðum áður nefndra ára leiddi í ljós að mesta vatnshæð varð í flóðinu 1983, áhrif sjávarfalla gætir þegar stórstreymi er og frostakaflar fara minnkandi sem og snjóalög en þessir þættir hafa áhrif á afrennsli á frosinni jörð og leysingarvatn í úrkomu- og leysingaflóðum, þeirri tegund flóða sem var til skoðunar í þessu verkefni. Ályktað er að niðurstöður þessa verkefnis verði nýttar til skipulagsgerðar í Borgarbyggð í framtíðinni og verði til þess að nákvæmar hæðarmælingar verði gerðar á svæðinu til að fá nákvæmari gögn til hæðarlíkanagerðar. Einnig er lagt til að unnið verði áfram að öflun gagna um flóð í Borgarfirði umfram það svæði sem var tekið til skoðunar í þessu verkefni þar sem byggð á láglendi er til staðar á bökkum Hvítár í Borgarfirði og þverám hennar."]},{"key":"dc:title","label":"Title","values":["Neðri hluti Hvítár í Borgarfirði: kortlagning flóðs 2006"]}]}],"canonical_facts":{"dc:contributor":["Landbúnaðarháskóli Íslands"],"dc:creator":["María Theodórsdóttir 1984-"],"dc:date.accessioned":["2012-02-21T13:16:08Z"],"dc:date.available":["2012-02-21T13:16:08Z"],"dc:date.issued":["2012-02-21"],"dc:description.abstract":["Í kjölfar mikilla úrkomu- og leysingaflóða í desember árið 2006 var Vatnamælingum Orkustofnunar falið að kortleggja útbreiðslu flóðanna og afla heimilda um eldri flóð. B.Sc. verkefni þetta var liður í gagnaöflun Vatnamælinga Orkustofnunar. Markmið verkefnisins var að kortleggja útbreiðslu flóðsins 2006 fyrir afmarkað svæði við Hvítá í Borgarfirði og afla heimilda um eldri flóð. Leitast var við að svara því hvort flóðið 2006 hefði verið það stærsta á svæðinu eða hvort búast mætti við stærri flóðum á svæðinu. Áhrif veðurfarsþátta og sjávarfalla var skoðuð í samhengi við sögulegar flóðhæðir. Gögn voru fengin frá Vatnamælingum Orkustofnunar, Samsýn ehf., Veðurstofu Íslands og Landhelgisgæslunni. Útbreiðsla flóðsins 2006 var kortlögð í ArcGIS forriti með ýmsum gögnum og heimildum um útbreiðslu flóðsins, t.d. GPS mælingum á flóðförum (rek í landi eftir flóðvatn). Munnlegar heimildir landeigenda voru skráðar, bæði um flóðið 2006 og önnur söguleg flóð. Mælingar úr vatnshæðarmælum í Borgarfirði voru notaðar til að bera saman flóð árin 1971, 1983, 1992 og síðan 2006. Leitað var heimilda um söguleg flóð í skýrslusafni Vatnamælinga Orkustofnunar, bókasafni og blaðagreinum Morgunblaðsins á síðu Landsbókasafns Íslands (www.timarit.is) með leitarorðum sem tengdust flóðum og kennileitum á svæðinu. Stuðst var við þær niðurstöður til að setja upp yfirlit yfir flóð í Hvítá í Borgarfirði. Helstu niðurstöður verkefnisins voru að flóðið 2006 var ekki það stærsta sem hefur komið á svæðinu og því má vænta stærri flóða í náinni framtíð. Nákvæmni hæðargagna reyndis ekki nægileg til að gera áreiðanlegt hæðarlíkan af svæðinu og þannig álykta útbreiðslu sögulegra flóða. Engu skipulagi stendur ógn af útbreiðslu flóða í neðri hluta Hvítár, en áhrif flóða á fyrirhugaða hreinsistöð fráveitu á Hvanneyri eru ekki talin mikil. Á svæðinu eru bæir sem iðulega verða umflotnir í flóðum og var Ferjukot skoðaður sérstaklega í þessu verkefni. Samanburður á sögulegum flóðhæðum áður nefndra ára leiddi í ljós að mesta vatnshæð varð í flóðinu 1983, áhrif sjávarfalla gætir þegar stórstreymi er og frostakaflar fara minnkandi sem og snjóalög en þessir þættir hafa áhrif á afrennsli á frosinni jörð og leysingarvatn í úrkomu- og leysingaflóðum, þeirri tegund flóða sem var til skoðunar í þessu verkefni. Ályktað er að niðurstöður þessa verkefnis verði nýttar til skipulagsgerðar í Borgarbyggð í framtíðinni og verði til þess að nákvæmar hæðarmælingar verði gerðar á svæðinu til að fá nákvæmari gögn til hæðarlíkanagerðar. Einnig er lagt til að unnið verði áfram að öflun gagna um flóð í Borgarfirði umfram það svæði sem var tekið til skoðunar í þessu verkefni þar sem byggð á láglendi er til staðar á bökkum Hvítár í Borgarfirði og þverám hennar."],"dc:identifier.uri":["http://hdl.handle.net/1946/10855"],"dc:language.iso":["is"],"dc:subject":["Borgarfjörður","Hvítá","Vatnamælingar"],"dc:title":["Neðri hluti Hvítár í Borgarfirði: kortlagning flóðs 2006"],"dc:type":["Thesis"]},"updated_at":"2026-07-27T18:39:44Z"}