Abstract
dc:description.abstractMarkmiðið með þessari ritgerð var að leita svara við eftirfarandi spurningu: Með hvað hætti getur skipulag mannvirkja og umhverfis í háskólaþorpinu á Hvanneyri stuðlað að bættum lífgæðum íbúa, starfsfólks og gesta? Til að leita svara við þeirri spurningu var staðan á Hvanneyri skoðuð og hvaða öfl hafi stjórnað byggðar-þróuninni fram til þessa. Leitast var við að svara spurningunni með skipulagstillögu sem byggð var á Umhverfisstefnu Landbúnaðarháskólans og á hugmyndafræði vistmenningar/permaculture. Þessar hugmyndir eru mjög samhljóma og nátengdar hugmyndum um sjálfbæra þróun. Í skipulagstillögunni var lagt til að akstur bifreiða yrði færður út úr háskólahverfinu og miðsvæði Hvanneyrar. Einnig voru settar fram hugmyndir um yfirbyggðar götur, umferðarmiðstöð, yfirbyggð torg, bæjargöng, torfveggi og þéttingu byggðar innan 500 metra radíus frá leik- og grunnskóla sem staðsettir er fyrir miðju þéttbýlinu. Að lokum var athyglinni beint að gömlu Hvanneyrartorfunni og lagðar fram hugmyndir sem miða að því að auka mannlíf og nýtingu svæðisins, án þess að skaða hina gömlu virðulegu hverfisásýnd. Með þessari skipulagsvinnu voru settar fram hugmyndir um það hvernig skipulag mannvirkja og umhverfis í háskólaþorpinu á Hvanneyri geti stuðlað að bættum lífsgæðum þeirra sem þar dvelja.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Arnar Birgir Ólafsson 1972-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/10839
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/10839