Global ETD Search
Search theses and dissertations gathered from participating repositories worldwide. Every result links back to the library that holds it. No account is needed.
Results
Showing 1 to 14 of 14 for “"Véltæknibúnaður"”.
-
Þriggja ása splittiskló
Verkefnið fjallar um umbætur á sjálfvirkum búnaði sem notaður er til þess að opna og loka ferjusplittum í vagnlosunarbúnaði skautvinnslu Álversins í Straumsvík. Hugmyndin af verkefninu kviknaði við viðhaldsstörf höfundar við búnaðinn. Viðhaldskostnaður við núverandi búnað var tekinn saman og …
-
Sprungumyndun í leiðiskóflum gufuaflsvéla 1-4 á Hellisheiði
Verkefnið fjallað um gufuaflsvélar hjá Orku náttúrunnar. Markmiðið er að finna faglega skýringu á því hvers vegna leiðiskóflublöð gufuaflsvéla á Hellisheiði eru að springa í kverkum. Reynt verður í verkefninu að draga fram allar staðreyndir og nýta þær til að finna niðurstöðu sem er gerð á faglegan …
-
Koltvísýrings kælikerfi á hjólavagni
Í þessari ritgerð verður farið í að hanna hjólapall undir CO2 kælikerfi sem mun vera sýningartæki í verslun, kerfið mun ganga með lofteimsvala en hafa vatnsinnspýtingu. Farið verður í helstu íhluti kerfisins og eins með varnarbúnað kerfisins. Farið í undirstöðuratriði í vinnuferli og sett upp. Gerð …
-
Hagkvæmni rafdrifsbúnaðar í stað díeselrafstöðva fyrir jarðbora
Aðal markmið þessa verkefnis er að athuga með hagkvæmni þess bæði fjárhagslega og rekstrarlega að skipta út díeselrafstöðvum fyrir Mótor/rafala breyta. Fyrir liggur að eitt af stærri orkufyrtækjum hér á landi er farið að gera kröfur um rafdrifna bora til að bora eftir gufu. Til þess að geta mætt …
-
Hönnun á fituvinnsluvél(CWR) fyrir Ýmir Technologies
Verkefnið fjallar um hönnunarvinnu við fituvinnsluvél (compact wet rendering) Ýmis Technologies. Markmið verkefnisins er að hanna íhluti fyrir vélina með þá grunnforsendu í fyrirrúmi að þeir passi á fleti sem samsvarar tveimur 40 feta gámum og anni 7000 kg/klst af hráefni. Þetta eru íhlutir á borð …
-
Karalyfta
Við ákváðum að hanna og smíða karalyftu sem á að uppfylla kröfur reglugerðar 1005/2009 um vélar og tæknilegan búnað. Nokkuð stór þáttur af verkefninu á að fjalla um hvaða skjöl og önnur gögn þurfa að fylgja karalyftunni svo hún uppfylli skilyrði til að hljóta CE-merkingu.
-
Renniloki í jarðvarmaumhverfi
Verkefnið er hönnun renniloka sem ætlaður er sem inntaksloki inn á forskilju í Reykjanesvirkjun. Notaðir hafa verið spjaldlokar sem inntakslokar en þeir ná ekki að loka nógu vel sökum mikilla útfellinga úr jarðhitavökvanum. Hefur það haft í för með sér óhagræði í viðhaldi safnæða í kerfinu og …
-
Eldiviðarkljúfur
Verkefni þetta fjallar um hönnun og smíði á eldiviðarkljúf til eldiviðarframleiðslu. Verkefnið gekk út frá þeim forsendum að notast við bensínkeðjusög til niðursögunar og glussaúrtaki frá dráttarvél til að knýja tjakkinn sem klýfur viðinn. Hönnunarferlinu er fylgt allt frá hugmynd að útreikningum …
-
Hönnun á Stauraþrykki
Verkefnið fjallar um hönnun á Stauraþrykki, en það er búnaður sem er til þess að auðvelda vinnu við að girða girðingar með því að reka girðingarstaura niður í jörð. Helstu markmið verkefnisins eru að einn maður geti unnið við búnaðinn, að búnaðurinn mati sig sjálfur af staurum, að hann sé einfaldur …
-
Bionic conditioning machine : hönnun og smíði
Verkefni þetta fjallar um hönnun og smíði á vél sem hreyfir Rheo Knee® hné sem framleidd eru af Össur hf. Við nýsmíði jafnt sem viðhald eru hnén prófuð og áður en þau eru prófuð, þá eru þau látin taka mismörg skref líkt og verið væri að nota þau við venjulegar aðstæður. Markmiðið verkefnisins er að …
-
Greining vandamála og úrbótatillaga í framleiðsluferli melmisstanga við HDC vél Fjarðaáls
Nokkur þekkt vandamál hafa verið viðloðin framleiðslu á steyptum afurðum sem kallaðar eru melmisstangir, úr HDC vél ALCOA Fjarðaáls. Þessi vandamál hafa verið til staðar í talsverðan tíma og er handstöflun melmisstanganna eitt af þeim. Þegar vandamál eins og óvæntar bilanir koma upp í búnaði sem …
-
Hönnun á afrúllara
Verkefnið fjallar um hönnun á afrúllara fyrir heyrúllur. Helstu markmið verkefnis eru: að hanna öruggan búnað sem mun auðvelda vinnu við gjöf á heyrúllu; að einn notandi geti unnið við búnaðinn; að búnaðurinn sé einfaldur í smíði og notkun; og að búnaðurinn sé viðhaldslítill, endingargóður og ódýr …
-
Redesign of Power Knee actuator with concern to sound level
Markmið verkefnis er að halda áfram þróun á frumgerðum hljóðlátari Power Knee. Power Knee er mótordrifið gervihné með Harmonic Drive niðurgírunarbúnaði. Í núverandi mynd er gírbúnaður festur beint í mótorhúsið og virkni hnésins auðheyrð öllum í nánasta nágrenni notandans. Í verkefninu verður haldið …
-
Energy analysis of a collagen production process in Codland's Factory in Iceland
The objective of this study is to look at waste heat utilization possibilities at a collagen production process based in Grindavík, called Codland. The utilization possibilities considered for the production process are mainly a small-scale electricity production with an ORC unit. Other …