Global ETD Search
Search theses and dissertations gathered from participating repositories worldwide. Every result links back to the library that holds it. No account is needed.
Results
Showing 1 to 20 of 21 for “"Véliðnfræði"”.
-
Handlokkur
Ritgerð þessi er lokaverkefni höfundar í véliðnfræði við Háskólann í Reykjavík. Markmið ritgerðarinnar er að kanna hvort hægt sé að hanna handverkfæri sem getur gatað stálplötur sem er betri en hefðbundin borvél. Til þess voru skoðaðar þrjár aðferðir til að ýta lokk í gegn um plötu: …
-
Endurbætur á færsludrifi
verkefnið felur í sér að greina veika hlekki í drifbúnaði og endurhanna vinkildrif á færslubúnaði sem hafa verið til vandræða á færanlegum sundlaugarbakka
-
Dráttarvéla Húsberi
Markmið verkefnisins er að hanna vagn til að flytja dekk og hús af dráttarvélum til geymslu, á meðan viðgerð stendur yfir, með öruggum og vönduðum hætti.
-
Þróun á búnaði í fisk afhausara sem eykur verðmæti afurðar
Þróunarvinna á búnaði í fisk hausara. Tilraun til að finna nýja útfærslu sem fer betur með höfuð fisksins þegar hann fer í gegnum hausara. Án þess að minnka nýtinguna miðað við núverandi búnað.
-
Þriggja ása splittiskló
Verkefnið fjallar um umbætur á sjálfvirkum búnaði sem notaður er til þess að opna og loka ferjusplittum í vagnlosunarbúnaði skautvinnslu Álversins í Straumsvík. Hugmyndin af verkefninu kviknaði við viðhaldsstörf höfundar við búnaðinn. Viðhaldskostnaður við núverandi búnað var tekinn saman og …
-
Sprungumyndun í leiðiskóflum gufuaflsvéla 1-4 á Hellisheiði
Verkefnið fjallað um gufuaflsvélar hjá Orku náttúrunnar. Markmiðið er að finna faglega skýringu á því hvers vegna leiðiskóflublöð gufuaflsvéla á Hellisheiði eru að springa í kverkum. Reynt verður í verkefninu að draga fram allar staðreyndir og nýta þær til að finna niðurstöðu sem er gerð á faglegan …
-
Koltvísýrings kælikerfi á hjólavagni
Í þessari ritgerð verður farið í að hanna hjólapall undir CO2 kælikerfi sem mun vera sýningartæki í verslun, kerfið mun ganga með lofteimsvala en hafa vatnsinnspýtingu. Farið verður í helstu íhluti kerfisins og eins með varnarbúnað kerfisins. Farið í undirstöðuratriði í vinnuferli og sett upp. Gerð …
-
Hönnun loftræsikerfis fyrir leikskólann Undrabrekku
Verkefnið er hönnun loftræsikerfis fyrir leikskólann Undrabrekku. Leikskólinn verður á tveimur hæðum, um 1600 fermetrar og gert er ráð fyrir allt að 120 börnum í skólanum. Hönnunin fól m.a. í sér val á búnaði og samstæðu, og gerð teikninga fyrir allt kerfið. Við val á stærð lagna var tekið tillit …
-
Smíðaleiðbeiningar : MS3028 laxahausari
Verkefnið fjallar um þróun myndrænna smíðaleiðbeininga fyrir afhausunarvél JBT Marel, MS3028, sem er hönnuð til að fjarlægja haus af laxi með stöðugu og nákvæmu vinnuflæði. Í upphafi framleiðslu kom í ljós að skortur á formlegum leiðbeiningum leiddi til mismunandi vinnuaðferða, ójafns flæðis og …
-
Skálagatapressa
Verkefnið fjallar um að auka rekstraröryggi lyftara sem notaður er á vinnusvæði Norðuráls á Grundartanga, inn í steypuskála fyrirtækisins. Til þess að auka rekstraröryggi lyftarans er hannaður búnaður sem vinnur verk sem lyftarinn er notaður í en hentar ekki fyrir. Starfsmenn steypuskálans vinna á …
-
Hagkvæmni rafdrifsbúnaðar í stað díeselrafstöðva fyrir jarðbora
Aðal markmið þessa verkefnis er að athuga með hagkvæmni þess bæði fjárhagslega og rekstrarlega að skipta út díeselrafstöðvum fyrir Mótor/rafala breyta. Fyrir liggur að eitt af stærri orkufyrtækjum hér á landi er farið að gera kröfur um rafdrifna bora til að bora eftir gufu. Til þess að geta mætt …
-
Uppsetning á nýjum loftþjöppum á þjónustukrönum NA
Skýrslan fjallar um uppsetningu á nýjum loftþjöppum ofan í kranabúk á þjónustukrönum NA. Farið yfir forsendur vals á loftþjöppum, forsendur breytinga á staðsetningu loftþjappa. Hönnun og teikningar fyrir búnað fyrir breytingar. Útreikningar á íhlutum og fyrir forsendur fyrir val á loftþjöppu. …
-
Karalyfta
Við ákváðum að hanna og smíða karalyftu sem á að uppfylla kröfur reglugerðar 1005/2009 um vélar og tæknilegan búnað. Nokkuð stór þáttur af verkefninu á að fjalla um hvaða skjöl og önnur gögn þurfa að fylgja karalyftunni svo hún uppfylli skilyrði til að hljóta CE-merkingu.
-
Búkrani í iðnaðarbil : lyftigeta að 1000kg
Verkefnið miðar að því að hanna brúkrana fyrir lítil og meðalstór iðnaðarbil sem getur lyft byrði upp að 1000kg. Leitast er eftir því að finna hagkvæma lausn til lyftiaðgerða sem er jafnframt fullkomlega lögleg. Farið er í gegnum allt ferlið frá hugmynd að fullmótaðri hönnun ásamt verðhugmynd og …
-
Sjálfbær LED lýsing
Lokaverkefni mitt er hönnun á tæknilegri útfærslu á búnaði til að gera götulýsingu með ljóstvistum sjálfbæra. Búnaðurinn notar sólarorku og vindorku til framleiðslu á rafmagni til rafgeyma. Stýri-og kerfisbúnaður stjórnar upplýsingum, nýtingu og notkun búnaðar til að hámarka dreifingu rafmagns yfir …
-
Togvírastrekkjari
Í þessu verkefni er ég að leitast við að hanna togvírastrekkjara til að geta spólað togvír beint af trékefli með uppí 10 tonna átaki inn á togspil. Þetta hefur ekki verið gert áður að mér vitandi og er því um nýjung að ræða.
-
Snjósleðabúnaður undir vélhjól
Verkefnið snýr að hönnun á snjósleðabúnaði undir vélhjól. Markmið verkefnis er að hanna drifbelti undir vélhjólið að aftan í stað afturdekks og framskíði í stað framdekks í þeim tilgangi að auðveldlega verði hægt að breyta vélhjóli í vélsleða.
-
Stórilækur
Í þessari ritgerð er fjallað um frumathuganir á virkjunarkostum í Stóralæk í Reyðarfirði. Kannaðir voru þættir sem eru grundvöllur fyrir byggingu virkjunar. Kannaðir voru þrír virkjunarmöguleikar. Einn var valinn og skoðaður frekar. Þar var meðal annars skoðaðar stíflugerðir og hvaða hverflar koma …
-
Renniloki í jarðvarmaumhverfi
Verkefnið er hönnun renniloka sem ætlaður er sem inntaksloki inn á forskilju í Reykjanesvirkjun. Notaðir hafa verið spjaldlokar sem inntakslokar en þeir ná ekki að loka nógu vel sökum mikilla útfellinga úr jarðhitavökvanum. Hefur það haft í för með sér óhagræði í viðhaldi safnæða í kerfinu og …
-
Hönnun smurkerfis undir hringekju
Verkefnið miðar að því að hanna smurkerfi sem virkar undir Sow Caster, einni af steypuvél steypuskála Alcoa Fjarðaál. Vandamál hefur verið með að botnplötur/leiðarar sem keyra eftir hjólum hafa verið að slitna. Einnig er hitaþenslan svo mikil á Sow Caster að legurnar í hjólun sem …
Page 1 of 2