Abstract
dc:description.abstractMeð þessari lokaskýrslu er ætlunin að ljá þöglum röddum þeirra sem störfuðu eða tengdust Kárahnjúkavirkjun á einn eða annan hátt hljóm. Markmiðið er að opna fólki sýn á ýmsar hliðar þessa samfélags sem ekki hafa allar verið sýnilegar utan þess. Í því skyni voru tekin átján viðtöl við tuttugu og tvo íslenska einstaklinga. Efninu er skipt niður í þrjá kafla. Sá fyrsti greinir frá upphafi rannsóknarinnar, aðferðum og markmiðum. Annar kafli fjallar um þau þemu sem greind voru út frá munnlegum heimildum auk annarra rannsóknargagna. Í þriðja og síðasta kaflanum er sagt frá sýningu á efni og niðurstöðum rannsóknarinnar en sýningin er hluti af þessu lokaverkefni. Í lokin er svo að finna samantekt á efninu og lokaorð. Helsta niðurstaða rannsóknarinnar er sú að gríðarleg stéttaskipting var á svæðinu, mann- og félagslegir þættir voru ekki hafðir að leiðarljósi og að umfjöllun fjölmiðla gaf oft villandi sýn á það samfélag sem þarna bjó.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hilda Kristjánsdóttir 1977-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/15378