Reykjavík University
Líknarmeðferð á Íslandi í alþjóðlegu ljósi, grasrótin var upphafið- næsta skref er stefnumótun.
Abstract
dc:description.abstractLangvinn og lífshættuleg veikindi er lýðheilsuvandamál sem tengist þjáningu, virðingu, umönnunarþörf og lífsgæðum fólks. Þessi hratt vaxandi faraldur er talinn vanmetinn þrátt fyrir umfangið. Rannsóknaniðurstöður benda til að líknarmeðferð sé viðeigandi meðferðarúrræði fyrir langvinna, ólæknandi og lífshættulega sjúkdóma. Þrátt fyrir það njóta aðallega krabbameinsveikir líknarmeðferðar. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur lagt áherslu á að þjóðir heims setji sér það lýðheilsumarkmið að allir langveikir einstaklingar sem þarfnast líknarmeðferðar hafi aðgang að sérhæfðri og heildrænni þjónustu. Rannsóknin var gerð með það að leiðarljósi að skýr framtíðarsýn ásamt stefnumótun auki möguleika á framþróun og efli almennan skilning á hvað felist í líknarþjónustu, hverjir eigi að fá líknarþjónustu og hvenær eigi að hefja slíka meðferð. Til að ná markmiði rannsóknarinnar var í fyrsta lagi skoðuð staða þekkingar í heiminum ásamt því að kanna almennan skilning á líknarþjónustu. Í öðru lagi var tekið saman yfirlit yfir líknarþjónustu á Íslandi. Í þriðja lagi var skoðað hvernig önnur Evrópulönd hafa sett fram stefnumótun á sviði líknarþjónustu og hvað væri hægt að yfirfæra á íslenskan raunveruleika. Í fjórða og síðasta lagi var fengin innsýn í reynsluheim fagfólks með þverfaglega reynslu af umönnun langveikra einstaklinga. Var það gert til að afla hugmynda varðandi framtíðarstefnumótun en skoðanir og reynsla þeirra sem starfa daglega við líknarmeðferð var talin mikilvægt framlag. Rannsóknaraðferðin var eigindleg og voru þátttakendur alls ellefu. Tekin voru sex hálf opin einstaklingsviðtöl og myndaður einn fimm manna rýnihópur sérfræðinga á sviði líknarmeðferðar. Fræðslumyndin „Líf og líkn“ var jafnframt greind og samþætt viðtölum en í myndinni eru tekin viðtöl við fjölmarga sérhæfða fagaðila á sviði líknarmeðferðar á Íslandi. Niðurstöður leiddu í ljós að líknarmeðferð er þverfagleg, sérhæfð meðferð með skýra hugmyndafræði. Líknarþjónusta á Íslandi er bæði fjölbreytt og frambærileg en er aðallega í boði fyrir krabbameinssjúklinga. Grasrótin var upphafið og stuðningur félagasamtaka hefur verið ómetanlegur í þróun starfseminnar. Skilningur ráðamanna er til staðar en stefnumótun vantar. Niðurstöður sýndu jafnframt að fagfólk telur mikilvægt að líknarmeðferð verði í boði fyrir alla langveika og ólæknandi einstaklinga. Lykilorð: Heildræn umönnun, fjölskyldan, langvinn veikindi, líknarmeðferð, líknarþjónusta, lýðheilsa, stefnumótun, umönnun, umönnunaraðilar, þverfagleg nálgun.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ásdís Björg Þórbjarnardóttir 1961-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/9880
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/9880