Back to search

Reykjavík University

Áhrif vöruumfjöllunar á bloggsíðum á vörusölu

Abstract

dc:description.abstract

Bloggsíður eru í auknum mæli notaðar til að fjalla um og kynna vörur og þjónustu fyrirtækja og eru orðnar að ómissandi þætti í útbreiðslu umtals og mótun orðspors fyrirtækja. Erlendar rannsóknir sýna að um níu af hverjum tíu þeirra fyrirtækja sem nota bloggsíður í markaðssetningu, telja þær skila árangri. Þá telja rúmlega 40% neytenda auknar líkur á að þeir kaupi vörur eða þjónustu út frá upplýsingum á bloggsíðum. Í rannsókninni var kannað hvort vöruumfjöllun á bloggsíðum hefði áhrif á vörusölu á íslenskum markaði. Framkvæmd var blind rannsókn (e. blind study) og þrjár sjálfstæðar bloggfærslur birtar á íslenskri bloggsíðu. Færslurnar samanstóðu af umfjöllunum um þrjár mismunandi snyrtivörur auk kennslumyndbanda um notkun hverrar vöru fyrir sig og mynda af umbúðum varanna. Þátttakendur í rannsókninni, lesendur bloggfærslnanna, voru alls 12.777. Sölutölur varanna þriggja voru rannsakaðar fyrir einn mánuð í kjölfar umfjöllunar á síðunni og bornar saman við sölutölur fyrir umfjöllun. Niðurstöður sýndu vegið meðaltal söluaukningar um 166%. Rúmlega 84% aukning varð á tímabilinu í sölu á vöru eitt, rúmlega 383% aukning á vöru tvö og tæplega 14% aukning á vöru þrjú. Samkvæmt rannsókninni er því ljóst að vöruumfjallanir á bloggsíðum hafa áhrif á neytendur og kaupákvörðun þeirra.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Rakel Ósk Guðbjartsdóttir 1985-
  • Sóley Jónsdóttir 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/9809
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/9809

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Rakel Ósk Guðbjartsdóttir 1985-; Sóley Jónsdóttir 1984-. Áhrif vöruumfjöllunar á bloggsíðum á vörusölu. 2011. http://hdl.handle.net/1946/9809