Back to search

Reykjavík University

Ábyrgð innri endurskoðenda á ársreikningum fjármálafyrirtækja gagnvart íslenskum lögum

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi fjallar um þá ábyrgð sem innri endurskoðendur bera á ársreikningum fjármálafyrirtækja. Spurningin, „Hver er ábyrgð innri endurskoðenda á ársreikningum fjármálafyrirtækja gagnvart íslenskum lögum“ verður borin upp og svara við henni leitað. Skoðaður er uppruni þeirra réttarheimilda sem tengjast ársreikningum fjármálafyrirtækja og hvernig þær hafa þróast fram að þessu. Fjallað verður um hin leiðeinandi Basel-tilmæli með hliðsjón af efni þeirra og tilgangi en sum þeirra hafa verið innleidd í íslenska löggjöf á meðan önnur hafa aðeins leiðbeinandi áhrif hér á landi. Jafnframt verða skoðaðar ólögfestar meginreglur viðskiptalífsins og hvernig þær hafa áhrif á starfsemi fjármálafyrirtækja. Hlutverk innri endurskoðenda er skoðað náið og hvernig það tengist innra eftirliti. Fjallað verður um þann skýra greinarmun sem gera verður á innri endurskoðun og innra eftirliti en þessu tvennu er oft ruglað saman. Aðferðafræði innra eftirlits verður kynnt til sögunnar, meðal annars út frá þeim líkönum sem þar eru notuð. Siðferði kemur jafnframt við sögu enda fléttast það á marga vegu inn í stjórnunarhætti fyrirtækja og jafnframt þeirri ábyrgð sem stjórnendur bera á rekstri. Dómar sem tengjast efninu verða reifaðir stuttlega til að fá skýrari mynd af þeirri ábyrgð sem innri endurskoðendur kunna að bera. Fjármálaeftirlitið, sem eftirlitsaðili á íslenskum fjármálamarkaði, spilar stórt hlutverk, að fylgjast með fjármálafyrirtækjum hér á landi. Með frjálsu flæði fjármagns á Evrópumarkaði leitast Fjármálaeftirlitið stöðugt við að veita starfandi fjármálafyrirtækjum á Íslandi viðeigandi aðhald, fjármálamarkaðinum í heild til hagsbóta. Niðurstöður ritgerðarinnar sýna að ábyrgð innri endurskoðenda á ársreikningum er engin gagnvart íslenskum lögum. Hins vegar full þörf er á að setja ítarlegri lagaramma um starfsemi innri endurskoðunar en þá einu lagagrein sem er að finna í settum lögum. Þrátt fyrir nokkrar úrbætur á árinu 2010 er frekari úrbóta þörf eigi innri endurskoðun að starfa á þeim lagagrundvelli sem endurspeglar kröfurnar sem til hennar eru gerðar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ásta Leonhardsdóttir 1973-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/9424
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/9424

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ásta Leonhardsdóttir 1973-. Ábyrgð innri endurskoðenda á ársreikningum fjármálafyrirtækja gagnvart íslenskum lögum. 2011. http://hdl.handle.net/1946/9424