Back to search

Reykjavík University

Ómerking ummæla

Abstract

dc:description.abstract

Umfjöllunarefni ritgerðarinnar er ómerking ummæla. Ómerking ummæla er sjálfstætt úrræði sem hægt er að fá fram í meiðyrðamáli. Heimildina til ómerkingar ummæla er að finna í 241. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Í meirihluta meiðyrðamála hér á landi er krafist ómerkingar ummæla og þá jafnan samhliða kröfu um refsingu eða skaðabætur. Ómerking ummæla felur í sér íhlutun í tjáningarfrelsið og er úrræðið því skoðað út frá tjáningarfrelsinu sem finna má í 10. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu og 73. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands. Þegar krafa er uppi um ómerkingu ummæla eru þau iðulega greind og komist að því hvernig ummælin eru, þ.e. hvort þau séu í formi gildisdóms eða staðhæfingar, og hvort þau séu ærumeiðandi, þ.e móðgun eða aðdróttun. Í ritgerðinni er komist að þeirri niðurstöðu að Hæstiréttur Íslands sé farinn að beita svipuðum aðferðum og Mannréttindadómstóll Evrópu hefur verið að þróa með sér. Þannig ómerkir Hæstiréttur almennt ekki gildisdóma, hann er farinn að líta í meira mæli til atvika í heild og í lýðræðislegum mikilvægum umræðum, svo sem pólitískum eða þjóðfélagslegum, telur hann síður tækt að hefta ummæli, sem er allt í samræmi við sjónarmið Mannréttindadómstóls Evrópu. Lagaákvæðið sjálft í 241. gr. alm. hgl. kveður á um að ómerkja megi óviðurkvæmileg ummæli. Þetta orðalag er óskýrt og að mati höfundar á mörkum þess að vera innan skilyrðisins sem finna má í 10. gr. MSE um að höft á tjáningarfrelsinu verði að vera innan þess „sem lög mæla fyrir um“. Komist er að þeirri niðurstöðu að það væri til bóta að breyta lagaákvæðinu þannig að það yrði skýrara og betur afmarkað hvers konar ummæli séu tæk til ómerkingar. Ætti sú breyting að vera í þá átt að tekin yrðu af tvímæli um að ómerking sé ekki tæk fyrir annað en aðdróttanir, og þannig lögfest, að ekki sé hægt að ómerkja móðganir eða gildisdóma, heldur eingöngu ósannaðar staðhæfingar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hjalti Sigvaldason Mogensen
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/9394
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/9394

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hjalti Sigvaldason Mogensen. Ómerking ummæla. 2011. http://hdl.handle.net/1946/9394