Back to search

Reykjavík University

Heilsurækt aldraðra

Abstract

dc:description.abstract

Í rannsókninni er skoðuð virkni og viðhorf aldraðra til líkams- og heilsuræktar með því markmiði að sjá hvað íþróttafræðingar geta gert til að bæta líkamsræktarstarfsemi aldraðra. Þátttakendur voru alls 114 einstaklingar á aldrinum 67-93 ára frá þremur félagsmiðstöðvum fyrir aldraða á höfuðborgarsvæðinu. Þessi megindlega rannsókn var framkvæmd á tímabilinu 28. febrúar til 16. mars árið 2011, þar sem spurningalistar voru lagðir fyrir þátttakendur. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að stór hluti aldraðra stundar líkamsrækt og voru þeir almennt ánægðir með það sem í boði er fyrir aldraða. Bætt lífsgæði var mesta hvatning þátttakenda til að stunda líkamsrækt. Aðal ástæða þess að hluti þátttakenda voru óvirkir í líkamsrækt var vegna veikinda/áverka og áhugaleysis. Þeir sem ekki stunduðu líkamsrækt töldu að æfingafélagi myndi hvetja þá til að hefja ástundun í líkamsrækt. Niðurstöður rannsóknarinnar styðja eldri rannsóknir sem sýna að bætt lífsgæði og félagsskapur eru stórir þættir hvað varðar virkni aldraðra í líkamsrækt. Einnig sýna eldri rannsóknir að óvirkni í líkamsrækt sé helst vegna veikinda/áverka og áhugaleysis. Lykilorð; líkams- og heilsurækt, aldraðir, virkni, hvatning, viðhorf.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Helga Hafsteinsdóttir 1988-
  • Sigurlaug Rúna Guðmundsdóttir 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/9242
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/9242

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Helga Hafsteinsdóttir 1988-; Sigurlaug Rúna Guðmundsdóttir 1985-. Heilsurækt aldraðra. 2011. http://hdl.handle.net/1946/9242