Back to search

Reykjavík University

„Stórasta land í heimi“

Abstract

dc:description.abstract

Hverjar eru helstu ástæður þess að karlalandslið Íslands í handknattleik hefur náð jafn góðum árangri á stórmótum og raun ber vitni? Hverjar eru helstu ástæður þess að Ísland hefur átt marga karlkyns handknattleiksmenn í fremstu röð í gegnum tíðina? Í ritgerðinni er leitast við að svara þessum spurningum. Notast var við eigindlega rannsóknaraðferð og tekin viðtöl með hálfopnum spurningum við reynslumikið fagfólk sem tengist viðfangsefninu. Vinna við rannsóknina hófst í janúar 2011 og lauk 10. maí 2011. Helstu markmið rannsóknarinnar voru að finna mögulegar ástæður fyrir velgengni íslenska karlalandsliðsins í handbolta sem og ástæður þess að Ísland hefur átt jafn frambærilega leikmenn í greininni og raun ber vitni. Til að leita svara við þessum spurningum er fjallað um árangur landsliðsins á stórmótum, fjölda atvinnumanna í gegnum tíðina auk þess sem farið er yfir líkamlegar og andlegar kröfur leiksins. Helstu niðurstöður voru þær að hefð fyrir handbolta er sterk hér á landi sem og að nálægðin við fyrirmyndir er mikil. Áður fyrr var það meira háð tilviljun hvort Ísland næði árangri á stórmótum en á síðustu árum hefur komið ákveðinn stöðuleiki í árangur liðsins. Niðurstöðurnar sýndu einnig fram á að árangur liðsins er yfirleitt betri þegar fleiri atvinnumenn eru í hópnum heldur en færri. Lykilorð; handbolti, handknattleikur, árangur, leikmenn, íþróttasálfræði, taktík, líkamleg þjálfun.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Ásbjörn Friðriksson 1988-
  • Grétar Þór Eyþórsson 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/9229
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/9229

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ásbjörn Friðriksson 1988-; Grétar Þór Eyþórsson 1986-. „Stórasta land í heimi“. 2011. http://hdl.handle.net/1946/9229