Back to search

Reykjavík University

Fjarskipti við mannlausa flugvél og nýjar leiðir til að auka stöðuleika hennar

Abstract

dc:description.abstract

Þetta verkefni var framhald að lokaverkefni Símonar Elvars Vilhjálmssonar „Fjarskiptavæðing mannlausrar flugvéla“ og snérist verkefnið um að halda áfram með það verk sem Símon hafði hafið. Í verkefninu þurfti að hanna og smíða prentplötu fyrir raf- og tækjabúnað sem setja átti í flugvélina. Hafa þurfti í huga við hönnun plötunnar að hafa hana sem minnsta því hólf fyrir tækjabúnað í flugvélinni er frekar takmarkað. Svo hægt væri að taka allar þær veðurmælingar sem þurfti að taka og stjórna sjálfstýringu flugvélarinnar þurfti að koma fyrir tveim örtölvum þar sem önnur sá um að taka á móti mælingum og hin sá um sjálfstýringuna. Sjá þurfti til þess að þessar tvær tölvur gætu haft samskipti sín á milli og var ákveðið að þessi samskipti myndu fara fram með SPI samskiptum. Uppfæra þurfti vettvangsflugtölvuna vegna þess að ný tölva var tekin til þess verks sem hafði nýtt stýrikerfi og þar með þurfti að uppfæra allan kóða í örtölvunni sem sá um sjálfstýringuna. Að lokum var leitað að búnaði til þess að koma í stað innrauðu skynjara flugvélarinnar sem sjá um að finna út stöðu flugvélarinnar meðan hún er í flugi. Skoðaðar voru mismunandi gerðir af IMU (Inertial Measurement Unit) sem er búnaður sem inniheldur hröðunarskynjara, gyro og búnað sem getur sagt til um staðsetningu s.s. GPS eða segulmæli. Með IMU er hægt að mæla út staðsetningu og stöðu flugvélarinnar á mjög nákvæman hátt. Við skoðun á IMU voru þrír þættir sem þurfti helst að taka tillit til en þeir voru stærð, þyngd og verð.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Júlíus Helgi Bjarnason 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/7705
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/7705

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Júlíus Helgi Bjarnason 1985-. Fjarskipti við mannlausa flugvél og nýjar leiðir til að auka stöðuleika hennar. 2011. http://hdl.handle.net/1946/7705