Back to search

Reykjavík University

Viðskiptakerfi ESB með tilliti til raforku

Abstract

dc:description.abstract

Viðskiptatilskipun ESB með tilliti til raforku Orku- og umhverfismál hafa verið ofarlega í hugum flestra Íslendinga á undanförnum misserum, meðal annars vegna REY- og Magma Energy-málanna. Í þessari ritgerð er fjallað um þær tilskipanir og reglugerðir er berast frá Evrópusambandinu og varða þennan málaflokk. Fyrst er þar farið yfir sögu raforkulöggjafar á Íslandi en aðgangur að raforku er lykilatriði til að nútímaþjóðfélag geti gegnt sínu hlutverki og uppfyllt þær þarfir sem til þess eru gerðar. Því næst er litið til Evrópusambandsins og gætt að því hvaða tilskipanir og reglugerðir gilda þar um þessi efni og hverjar af þeim hafa nú þegar verið leiddar inn í íslensk lög í gegnum EES-samninginn. Jafnframt er skoðað hvernig alþjóðasáttmáli eins og Rammasamningur Sameinuðu þjóðanna frá 1992 og Kyoto-bókunin við hann hafa áhrif á löggjöfina hér, en Ísland er aðili að nefndum samningi og bókuninni. „Orku- og umhverfispakki” Evrópusambandsins var kynntur til sögunnar árið 2007. Þar voru þau háleitu markmið sett fram að stefnt væri að 20% samdrætti í losun á gróðurhúsalofttegundum fyrir árið 2020. Í ritgerðinni er hugað að því hvað felist í þessum „orkupakka” og hvernig hann tengist Íslandi. Því næst er farið yfir viðskiptatilskipunina nr. 2003/87/EB sem er eins konar kvótakerfi með losunarheimildir og skoðað hvaða áhrif hún muni hafa hér á landi og þá sérstaklega á raforkumarkaðinn. Einnig er athygli beint að svokallaðri RES-tilskipun nr. 2001/77/EB, sem hefur það að markmiði að fá aðildarríkin til að framleiða raforku með endurnýjanlegum orkugjöfum. Ný RES-tilskipun var gefin út árið 2009, nr. 2009/29/EB og er hugað að því hvaða áhrif hún muni hafa hérlendis, ef þá nokkur. Að lokum er hugleitt að því hvaða áhrif umræddar tilskipanir og reglugerðir hafi eða muni hafa á íslenska raforkulöggjöf og -markað.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Súsanna Björg Fróðadóttir 1971-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/7453
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/7453

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Súsanna Björg Fróðadóttir 1971-. Viðskiptakerfi ESB með tilliti til raforku. 2011. http://hdl.handle.net/1946/7453