Back to search

Reykjavík University

Geta skuggastjórnendur borið ábyrgð samkvæmt íslenskum rétti?

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerðin fjallar um ábyrgð stjórnenda hlutafélaga og mögulega ábyrgð skuggastjórnenda samkvæmt íslenskum rétti. Í fyrri hlutanum er fjallað um stjórnun hlutafélaga og almenn sjónarmið um stjórnun þeirra. Gerð er grein fyrir skyldum kjörinna stjórnarmanna, framkvæmdastjóra og hluthafa hlutafélaga. Skoðuð eru skilyrði fyrir skaðabótaábyrgð vegna vanrækslu á skyldum og ákvörðunum til að hafa uppi skaðabótakröfu. Hinum almennu skaðabótareglum eru stuttlega gerð skil, auk sjónarmiða um sönnunarbyrði. Í seinni hlutanum er fjallað um skilgreiningu og sérkenni á hugtakinu skuggastjórnendur. Leitast er við að skoðað aðstæður, hegðun og skilyrði sem þurfa að vera til staðar til að aðili geti fallið undir hugtakið. Gerð er grein fyrir hugsanlegum skuggastjórnendum og tilvist þeirra. Samanburður er gerður á breskum, dönskum og íslenskum lögum varðandi skilgreiningu og túlkun á hugtakinu skuggastjórnandi. Í ritgerðinni er aðallega stuðst við fræðibækur og greinar á sviði félagaréttar. Einnig er stuðst við innlend og erlend hlutafélagalög og dómafordæmi. Markmið ritgerðarinnar er að gera grein fyrir hugtakinu skuggastjórnandi og svara þeirri spurningu hvort skuggastjórnandi geti borið ábyrgð samkvæmt íslenskum rétti. Til að nálgast svarið er nauðsynlegt að skoða skyldur og ábyrgð stjórnenda, í því skyni að kortleggja við hvaða aðstæður stjórnendur geti borið skaðabótaábyrgð. Einnig eru skilgreindar aðstæður og skilyrði sem þurfa að vera uppfyllt til að aðili falli undir hugtakið skuggastjórnandi. Helstu niðurstöður eru að skuggastjórnendur geta borið ábyrgð samkvæmt íslenskum rétti. Þrátt fyrir að dómafordæmi séu fá þá hafa dómstólar dregið þá til ábyrgðar sem taldir hafa verið hinir raunverulegu stjórnendur. Bótaábyrgð samkvæmt almennum skaðabótareglum leiðir til sömu niðurstöðu og samkvæmt skaðabótaákvæðum hlutafélagalaganna.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ólafur G. Magnússon 1960-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/6985
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/6985

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ólafur G. Magnússon 1960-. Geta skuggastjórnendur borið ábyrgð samkvæmt íslenskum rétti?. 2010. http://hdl.handle.net/1946/6985