Back to search

Reykjavík University

Áhrif regluverks á veitingarekstur á Íslandi : hvernig upplifa eigendur og stjórnendur veitingastaða á Íslandi áhrif regluverks um slíka staði á rekstrarskilyrði fyrirtækja sinna?

Abstract

dc:description.abstract

Veitingarekstur er mikilvægur hluti af því að halda uppi menningu og afþreyingu í samfélagi. Þetta eru samkomustaðir þar sem fólk hittist til að njóta samveru, góðra veitinga og ánægjulegrar upplifunar og gegna þeir veigamiklu hlutverki í að skapa öflugt samfélag. En til þess að samfélag virki með eðlilegum hætti er nauðsynlegt að lög og reglur séu til staðar og á slíkt einnig við um rekstur veitingastaða. Gestir eiga að geta gengið að öryggi og hreinlæti en jafnframt verður regluverk að vera sanngjarnt, skýrt og taka tillit til þarfa allra hagsmunaaðila. Þetta á sérstaklega við þegar kemur að matvælum þar sem öryggi neytenda er afar mikilvægt. Án viðeigandi regluverks og eftirlits gætu alvarleg heilbrigðisvandamál komið upp sem gæti skaðað bæði neytendur og orðspor veitingastaða. Jafnframt er mikilvægt að þetta regluverk sé ekki of íþyngjandi fyrir rekstraraðila, þannig að það hamli ekki framþróun og virki ekki sem aðgangshindrun fyrir nýja aðila. Í þessari rannsókn verður fjallað um þær áskoranir sem eigendur veitingastaða standa frammi fyrir, einna helst í opnunarferlinu, og síðan hvernig regluverk og opinbert eftirlit hafa áhrif á daglegan rekstur veitingastaða. Tekin voru fjögur eigindleg viðtöl við eigendur veitingastaða og leiddu helstu niðurstöður í ljós að óskýrleiki er ríkjandi í þeim ferlum sem tengjast opnun og rekstri veitingastaða. Eigendur upplifa eftirlit og leyfisveitingar oftar en ekki sem refsandi frekar en stuðningsmiðað. Niðurstöðurnar benda til þess að brýnt sé að endurskoða núverandi regluverk, einfalda framkvæmd eftirlits og samskipti milli yfirvalda og rekstraraðila. Með því mætti minnka sóun, auka nýsköpun og skapa skýrara og réttlátara umhverfi fyrir veitingastarfsemi á Íslandi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson 2002-
  • Helga Lind Pétursdóttir 2003-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53673
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53673

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson 2002-; Helga Lind Pétursdóttir 2003-. Áhrif regluverks á veitingarekstur á Íslandi : hvernig upplifa eigendur og stjórnendur veitingastaða á Íslandi áhrif regluverks um slíka staði á rekstrarskilyrði fyrirtækja sinna?. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53673