Back to search

Reykjavík University

Samanburður á þróun líkamlegs ástands knattspyrnumanna yfir undirbúningstímabil

Abstract

dc:description.abstract

Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvernig líkamlegt ástand knattspyrnumanna á mismunandi aldurs- og getustigum þróaðist yfir undirbúningstímabil. Þátttakendur rannsóknarinnar voru, leikmenn annars vegar úr meistaraflokki karla og hins vegar 2. flokki karla hjá knattspyrnuliðinu Fjölni. Mælingar voru framkvæmdar á þremur mismunandi tímapunktum yfir tímabilið, en mældir voru eftirfarandi þættir: hæð, þyngd, afl, hraði, hröðun, snerpa og þol. Þróunn á milli hópanna tveggja var heldur ólík yfir tímabilið, þar sem niðurstöður sýndu fram á fleiri og skýrari marktækar breytingar hjá leikmönnum meistaraflokks heldur en hjá leikmönnum 2. flokks. Hópur meistaraflokks karla sýndi fram á jákvæðar marktækar breytingar í mælingum á líkamsþyngd, afli og þoli, en sömuleiðis neikvæðar marktækar breytingar í mælingum á hraða og hröðun. Hópur 2. flokks sýndi fram á jákvæðar marktækar breytingar í mælingum á líkamsþyngd og í 10 metra spretthluta af hraða- og hröðunarprófum. Niðurstöðurnar gefa til kynna að þættir eins og þjálfunarumhverfi, fjöldi æfinga og stöðugleiki í mætingu geti haft áhrif á hvernig líkamlegt ástand leikmanna þróast yfir undirbúningstímabil.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Bjarki Már Bergsson 2003-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53572
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53572

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Bjarki Már Bergsson 2003-. Samanburður á þróun líkamlegs ástands knattspyrnumanna yfir undirbúningstímabil. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53572