Back to search

Reykjavík University

Austurríska hagsveiflukenningin og hagsveiflur í Argentínu : söguleg greining og fyrstu skref Javier Milei : mat á skýringarmætti austurrísku hagsveiflukenningarinnar í samanburði við meginstraumskenningar

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð er skýringarmáttur austurrísku hagsveiflukenningarinnar metinn gagnvart hagsveiflum og efnahagslegum óstöðugleika í argentínska hagkerfinu á tímabilinu 1980–2024 og borinn saman við meginstraumskenningar: peningamagnshyggju, ný-keynesíska nálgun og skuldakrísu og fastgengisnálganir. Jafnframt er stefna Javier Milei frá árslokum 2023 greind sem einstök tilraun til beitingar austurrískra hagfræði kenninga á þjóðhagkerfi. Rannsóknin byggir á blandaðri aðferðafræði þar sem eigindleg fræðileg greining er samþætt megindlegri tímaraðagreiningu með gögnum frá BCRA, Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Alþjóðabankanum. Greiningin skiptist í þrjú tímabil: 1980–1991, 1991–2002 og 2002–2024. Niðurstöður sýna að skýringarmáttur ABCT er ekki stöðugur yfir tíma heldur háður stofnanalegu samhengi. Sterkasta samræmið finnst á tímabilinu 1991–2002, þar sem fylgni milli raunvaxta og lánsfjárþenslu er mjög sterk og neikvæð (−0,89) og fylgni milli lánsfjárþenslu og hagvaxtar sterk og jákvæð (0,76), nákvæmlega það mynstur sem kenningin spáir fyrir um. Á tímabilinu 1980–1991 skýrist þróunin betur af peningamagnshyggju þar sem óstýrð peningaprentun og ofurverðbólga ráða för, en á tímabilinu 2002–2024 brotnar orsakakeðja ABCT þar sem lánsfé rennur fremur til óframleiðnar starfsemi en framleiðslulegrar fjárfestingar. Aðhvarfsgreining staðfestir að peningagrunnur skýrir um 62% af breytileika í lánsfjárútþenslu yfir allt tímabilið, en lykilbreytur ABCT eru ekki tölfræðilega marktækar til að skýra hagvöxt þegar öll árin eru sameinuð. Kerfislegir þættir á borð við sveifluhvetjandi ríkisfjármál, hrávöruháð hagkerfi, quasi-fiscal halla og stíft gengisfyrirkomulag skýra þróunina betur en lánsfjárþensla ein og sér. Stefna Milei hefur skilað sögulegum ríkisfjárhagslegum afgangi í fyrsta sinn í 14 ár og dregið verðbólgu úr 211% niður í 31,5%, en félagslegur kostnaður er umtalsverður og jafnvægið enn brothætt. Greiningin sýnir að hrein beiting ABCT á raunverulegt hagkerfi krefst pragmatískra málamiðlana. Helsta niðurstaða ritgerðarinnar er að austurríska hagsveiflukenningin er verðmætt en takmarkað greiningartæki sem skerpar á hlutverki verðmerkja og innri uppbyggingu fjárfestingar, en kemur ekki í stað hefðbundinna kenninga heldur bætist við þær sem viðbótarskýring.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Hrannar Gauti Sigmundsson 2003-
  • Víkingur Sindri Ólafsson 1990-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53570
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53570

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hrannar Gauti Sigmundsson 2003-; Víkingur Sindri Ólafsson 1990-. Austurríska hagsveiflukenningin og hagsveiflur í Argentínu : söguleg greining og fyrstu skref Javier Milei : mat á skýringarmætti austurrísku hagsveiflukenningarinnar í samanburði við meginstraumskenningar. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53570