Reykjavík University
Upplifun á sérhæfingu hjá atvinnu- og landsliðsfólki í handknattleik : blönduð rannsókn
Abstract
dc:description.abstractÁ síðustu árum hefur aukin umræða verið um það hvenær íþróttafólk ætti að sérhæfa sig í einni íþrótt og hvaða áhrif sú tímasetning hefur á þróun og möguleika á árangri. Markmið þessarar rannsóknar var að skyggnast inn í upplifun handboltaleikmanna af eigin sérhæfingu og hvernig þeir telja að hún hafi mótað feril þeirra. Sérstök áhersla var lögð á að skoða hvort þeir hefðu stundað fleiri íþróttir á yngri árum og hvernig sú reynsla tengdist þróun þeirra í handbolta. Notast var við blandaða rannsóknaraðferð þar sem annars vegar svöruðu 18 leikmenn spurningalista og hins vegar voru tekin viðtöl við átta atvinnu- og landsliðsleikmenn. Niðurstöðurnar sýndu að flestir þátttakendur höfðu verið í fleiri íþróttum áður en þeir einbeittu sér alfarið að handbolta og að sérhæfing átti sér oftast stað á unglingsárum, þó með töluverðri dreifingu. Þá kom fram að ákvörðun um sérhæfingu var sjaldnast skýr eða tekin á einum tímapunkti, heldur þróaðist smám saman með auknum áhuga og breyttum aðstæðum. Auk þess bentu niðurstöður til þess að reynsla úr öðrum íþróttum gæti tengst þróun líkamlegra eiginleika og hreyfifærni, á meðan andlegir þættir eins og pressa og sjálfstraust gengdu mikilvægu hlutverki í ferlinu. Niðurstöðurnar benda til þess að snemmbúin sérhæfing sé ekki nauðsynleg til að ná árangri og að leiðir íþróttafólks að afreksstigi geti verið mismunandi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Thelma Lind Victorsdóttir 2001-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53569
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/53569