Reykjavík University
Efnahagsbrot : hvernig eru efnahagsbrot í fjármálafyrirtækjum skilgreind, rannsökuð, saksótt og dæmd í íslensku réttarkerfi?
Abstract
dc:description.abstractHröð þróun hefur verið í viðskiptalífinu síðustu áratugi og hefur það haft í för með sér aukna áhættu á flóknum efnahagsbrotum. Í kjölfar þessarar þróunar hefur íslensk löggjöf þurft að aðlagast, bæði hvað varðar rannsókn og saksókn efnahagsbrota, og lagareglur sem gilda um slík brot. Ritgerð þessi ber titilinn: „Hvernig eru efnahagsbrot í fjármálafyrirtækjum skilgreind, rannsökuð, saksótt og dæmd í íslensku réttarkerfi?“, og í henni er leitast svara við þeirri spurningu. Hugtakið efnahagsbrot er ekki skilgreint sérstaklega í lögum, en fræðimenn og dómaframkvæmd hafa markað ákveðin viðmið um inntak þess. Í ritgerðinni er sérstaklega farið yfir þau brot sem falla undir skilgreiningu fræðimanna á efnahagsbrotum, þar sem sjónum er beint að almennum hegningarlögum nr. 19/1940 og sérrefsilögum sem hafa að geyma ákvæði um efnahagsbrot. Efnahagsbrot í starfsemi fjármálafyrirtækja geta verið umfangsmikil og tæknilega flókin, sem kallar á sérþekkingu þeirra sem rannsaka og saksækja slík brot. Í kjölfar efnahagshrunsins árið 2008 urðu verulegar breytingar á umgjörð stofnana sem sjá um málsmeðferð efnahagsbrota, þar sem verklag rannsóknar og saksóknar var einnig endurskoðað. Umfjöllun ritgerðarinnar bendir til þess að íslensk réttarframkvæmd sé betur í stakk búin en áður til að takast á við umfang slíkra brota, þó enn séu áskoranir sem stafa af tæknilegri þróun viðskiptaumhverfisins og breytilegum viðskiptaháttum. Í ritgerðinni er jafnframt dregið fram að slík brot geti haft víðtæk áhrif á fjármálamarkaði og samfélag, og að oft sé erfitt að rekja bein orsakatengsl, þar sem áhrifin kunna að vera dreifð.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Kristjana Dagmey Taroni 1990-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/51978
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/51978