Abstract
dc:description.abstractVerkefnið fjallar um þróun myndrænna smíðaleiðbeininga fyrir afhausunarvél JBT Marel, MS3028, sem er hönnuð til að fjarlægja haus af laxi með stöðugu og nákvæmu vinnuflæði. Í upphafi framleiðslu kom í ljós að skortur á formlegum leiðbeiningum leiddi til mismunandi vinnuaðferða, ójafns flæðis og aukinnar þörf fyrir munnlega þekkingarmiðlun milli starfsmanna. Þar sem verkefnið krafðist náinnar samvinnu milli hönnuða og smiða varð ljóst að stöðlun verklags myndi styrkja bæði gæði og framleiðsluhraða. Markmið verkefnisins var að hanna skýrar, skipulagðar og myndrænar leiðbeiningar fyrir smíði skrokks vélarinnar, sem er grunnuppbygging hennar og undirstaða allrar samsetningar. Leiðbeiningarnar byggja á þrívíddarlíkani vélarinnar ásamt verklegri reynslu starfsmanna og fixtúrugerð sem tryggir rétta staðsetningu lykilhluta. Verkferlið var sett fram í röð skrefa með myndum og texta þannig að bæði nýir og reyndir starfsmenn geti fylgt sömu aðferð og náð stöðugum árangri. Þróun leiðbeininganna hafði jafnframt jákvæð áhrif á samhæfingu milli teymis, þjálfun nýliða og skipulag innleiðingar. Með samræmdum vinnubrögðum verður framleiðslan fyrirsjáanlegri, stöðugri og betri grundvöllur skapast fyrir áframhaldandi umbætur. Verkefnið sýnir að vel útfærðar myndrænar leiðbeiningar geta verið lykilverkfæri við að efla gæði, einfalda verklag og stytta innleiðingartíma í smíði sérhæfðs vélbúnaðar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Gunnar Már Þórðarson 2001-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/51966
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/51966