Back to search

Reykjavík University

Lágmarks verndarráðstafanir 18. gr. flokkunarreglugerðarinnar : hvernig uppfylla íslensk fjármálafyrirtæki skilyrði ákvæðisins?

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð er leitað svara við því hvernig íslensk fjármálafyrirtæki geta uppfyllt lágmarks verndarráðstafanir 18. gr. flokkunarreglugerðarinnar. Fjármálakerfið og yfirfærsla þess í átt að sjálfbærum fjármálum er grundvallarliður í baráttunni við hlýnun jarðar að mati Evrópusambandsins. Flokkunarreglugerðin 2020/852 var sett á fór til að búa til ramma utan um sjálfbærar fjárfestingar. Til þess að atvinnustarfsemi teljist umhverfislega sjálfbær á grundvelli flokkunarreglugerðarinnar ber fyrirtækinu sem heldur úti starfsemina að uppfylla lágmarks verndarráðstafanir 18. gr. reglugerðarinnar. Lágmarks verndarráðstafanirnar krefja fyrirtæki að framkvæma verkferla í starfsemi sinni í samræmi við ákveðnar alþjóðlegar félagslegar meginreglur og viðmið um ábyrga stjórnarhætti. Lagt er mat á umfang og efnistök 1. mgr. 18. gr. og tenging 2. mgr. 18. gr. við varúðarmeginreglu SFDR um að valda ekki umtalsverðum skaða er gerð skil. Þá er lögð til grundvallar ráðgjöf úr skýrslu frá vettvangnum um sjálfbær fjármál til að leggja mat á hvernig skal uppfylla ákvæði 18. gr. Fjármálafyrirtæki geta uppfyllt skilyrði 18. gr. með því að (i) innleiða verkferla um kostgæfnisathuganir (e. due diligence) í samræmi við viðmið og meginreglur 1. mgr. 18. gr. reglugerðarinnar, (ii) hafa til staðar innra eftirlit og vötkun með framkvæmd verkferlanna og (iii) með því að úttektir þriðja aðila eigi sér stað. Þá skal gagnsæi höfð að leiðarljósi þegar fjármálafyrirtæki hlíta að lágmarks verndarráðstöfununum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Iðunn Helgadóttir 1997-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/51581
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/51581

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Iðunn Helgadóttir 1997-. Lágmarks verndarráðstafanir 18. gr. flokkunarreglugerðarinnar : hvernig uppfylla íslensk fjármálafyrirtæki skilyrði ákvæðisins?. 2025. https://hdl.handle.net/1946/51581