Back to search

Reykjavík University

Málamyndahjúskapur í íslenskum rétti : túlkun og beiting 1. og 2. mgr. 92. gr., sbr. 8. mgr. 70. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 með hliðsjón af EES-rétti

Abstract

dc:description.abstract

Undanfarin ár hafa fjölmörg Evrópuríki hert reglur um innflytjendamál, sem hefur leitt til aukinnar áherslu á fjölskyldusameiningu sem leið til dvalar. Í þessu samhengi hefur málamyndahjúskapur orðið að umtalsverðu álitamáli. Í ritgerðinni er sjónum beint að því hvernig íslensk stjórnvöld meta málamyndahjúskap í tengslum við umsóknir um dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar, með sérstakri áherslu á 1. og 2. mgr. 92. gr., sbr. 8. mgr. 70. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Markmið þessarar ritgerðar er að kanna hvort beiting 1. og 2. mgr. 92. gr., sbr. 8. mgr. 70. gr. laga um útlendinga og framkvæmd íslenskra stjórnvalda við mat á málamyndahjúskap samrýmist 35. gr. tilskipunarinnar 2004/38/EB, eins og hún hefur verið túlkuð af EFTA-dómstólnum og Evrópudómstólnum. Rannsóknin byggir á greiningu laga, stjórnsýsluframkvæmdar og dómafordæma. Jafnframt er íslensk framkvæmd borin saman við norskan rétt til að varpa ljósi á stöðu hennar í norrænu samhengi. Helstu niðurstöður sýna að íslensk stjórnsýsluframkvæmd er ekki í fullu samræmi við þær kröfur sem leiða af EES-rétti. Samkvæmt dómaframkvæmd EFTA-dómstólsins, m.a. í málum Kerim og Q o.fl., ber að beita tvíþættu mati þegar grunur leikur á málamyndahjúskap. Í fyrsta lagi þarf að meta hlutlægan þátt, þ.e. hvort raunverulegt samband eða fjölskyldulíf sé til staðar. Í öðru lagi þarf að meta huglægan þátt, þ.e. hvort megintilgangur hjúskaparins hafi verið að afla dvalarréttar. Rannsóknin leiðir í ljós að íslensk stjórnvöld leggja höfuðáherslu á huglæga þáttinn án þess að leggja fullnægjandi og kerfisbundið mat á þann hlutlæga, sem er forsenda matsins samkvæmt EES-rétti. Þessi nálgun er í andstöðu við túlkun á 35. gr. tilskipunarinnar, sem ber að skýra með hliðsjón af réttinum til fjölskyldulífs samkvæmt 8. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Angelika Hilla 2001-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/51579
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/51579

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Angelika Hilla 2001-. Málamyndahjúskapur í íslenskum rétti : túlkun og beiting 1. og 2. mgr. 92. gr., sbr. 8. mgr. 70. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 með hliðsjón af EES-rétti. 2025. https://hdl.handle.net/1946/51579