Reykjavík University
Prevalence and potential predictors of burnout among healthcare workers at the psychiatric department of the National University Hospital of Iceland.
Abstract
dc:description.abstractKulnun er nýlegt hugtak sem hefur fengið aukna athygli undanfarna áratugi. Þrátt fyrir fjölda rannsókna er enn deilt um hvernig eigi að skilgreina hugtakið. Markmið þessarar rannsóknar er að kanna hvort persónuleikaeinkenni, ábyrgðarkennd (e. responsibility) og óhjálpleg fullkomnunarárátta (e. maladaptive perfectionism), tengist einkennum kulnunar. Aðferð: Alls tóku 106 heilbrigðisstarfsmenn á geðsviði Landspítala-háskólasjúkrahúss þátt. Þátttakendur veittu bakgrunnsupplýsingar og svöruðu þremur spurningalistum: BAT, APS-R og RAS. Gögnin voru greind með Pearsons fylgni, Welch‘s ANOVA, og línulegri aðhvarfsgreiningu. Niðurstöður: Bakgrunnsbreytur höfðu ekki marktæk tengsl við kulnun, aðeins óhjálpleg fullkomnunarárátta og ábyrgðarkennd og samvirkni þeirra. Ályktun: Niðurstöður benda til þess að óhjálpleg fullkomnunarárátta og ábyrgðarkennd geti verið áhættuþættir fyrir kulnun. Hins vegar reyndist óhjálpleg fullkomnunarárátta mun sterkari forspárþáttur og dró úr áhrifum ábyrgðarkenndar á kulnun. Hjálpleg fullkomnunarárátta virtist ekki vera verndandi þáttur. Þessi rannsókn veitir innsýn í kulnunareinkenni meðal heilbrigðisstarfsmanna og kannar tengsl fullkomnunaráráttu, ábyrgðarkenndar og kulnunar. Lykilorð: Kulnun, Ábyrgðarkennd, Fullkomnunarárátta, Heilbrigðisstarfsmenn
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Anton Nikolaisson Haydarly 1993-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- en
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/51128
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/51128