Back to search

Reykjavík University

Milliverðlagning í alþjóðlegu samhengi : íslenskar reglur í ljósi tillögu Evrópusambandsins að tilskipun um milliverðlagningu (COM/2023/529 final)

Abstract

dc:description.abstract

Milliverðlagning er það svið skattaréttar sem fjallar um verðlagningu í viðskiptum milli tengdra aðila, jafnan yfir landamæri, og gegnir lykilhlutverki við að tryggja sanngjarna skiptingu skattstofna milli ríkja og koma í veg fyrir tilfærslu hagnaðar milli skattalögsagnarumdæma. Markmið þessa rits er að greina íslenskar reglur um milliverðlagningu í ljósi nýrrar tillögu Evrópusambandsins að tilskipun á þessu sviði (COM/2023/529 final). Í upphafi verður leitast við að skýra hugtakið ,,milliverðlagning‘‘ bæði í innlendu og alþjóðlegu samhengi. Því næst verður vikið að grundvelli armslengdarreglunnar og beitingu armslengdarviðmiðsins í framkvæmd. Í kjölfarið verður fjallað um íslenskar reglur um milliverðlagningu, þar sem áhersla verður lögð á alþjóðlegt samstarf og helstu álitaefni sem tengjast viðfangsefninu, þar með talið úrlausn ágreiningsmála. Þá verður gerð grein fyrir tillögu Evrópusambandsins og mögulegum áhrifum hennar á íslenskan rétt. Í framhaldinu verður borinn saman efnislegur munur á ákvæðum tillögunnar og íslenskum reglum. Að lokum verður fjallað um skjölunarskyldu í milliverðlagningu, bæði í innlendu og alþjóðlegu samhengi, með hliðsjón af því hvort ákvæði tillögunnar kunni að leiða til breytinga á íslenskum og alþjóðlegum viðmiðum að því leyti. Af niðurstöðum ritsins má ráða að íslenskar reglur um milliverðlagningu byggi nær alfarið á leiðbeiningarreglum OECD um sama efni. Sú nálgun samræmist afstöðu íslenskrar dóma- og úrskurðarframkvæmdar, þótt reynslan af beitingu reglnanna sé enn verulega takmörkuð. Ísland er ekki skuldbundið til að innleiða hina fyrirhuguðu tilskipun í landsrétt, en í ljósi þróunar samræmdrar skattastefnu innan Evrópusambandsins þykir rökrétt að íslensk stjórnvöld taki heildstæða afstöðu til þess hvort þau hyggist fylgja þeirri stefnu, einkum hvað varðar reglusetningu á sviði milliverðlagningar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Þórunn Stefánsdóttir 2000-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/50996
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/50996

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Þórunn Stefánsdóttir 2000-. Milliverðlagning í alþjóðlegu samhengi : íslenskar reglur í ljósi tillögu Evrópusambandsins að tilskipun um milliverðlagningu (COM/2023/529 final). 2025. https://hdl.handle.net/1946/50996