Back to search

Reykjavík University

Áhættusækni Íslendinga í fjárfestingum

Abstract

dc:description.abstract

Á síðustu árum hefur þátttaka almennings í fjárfestingum aukist verulega, meðal annars vegna aukins aðgengis að stafrænum fjárfestingarleiðum. Í þessari rannsókn beitum við sjónum að því hvernig áhættusækni einstaklinga í fjárfestingum mótast af lýðfræðilegum og sálfræðilegum þáttum. Rannsókn þessi er byggð á blandaðri aðferðafræði þar sem búið var til spurningalista sem 105 einstaklingar svöruðu. Auk þess voru tekin viðtöl við tvo sérfræðinga úr fjármála- og nýsköpunarumhverfi. Framkvæmd var einföld dreifigreining (e. One-Way ANOVA) til að kanna hvort marktækur munur væri á áhættusækni milli ólíkra hópa. Þó að tölfræðileg marktækni hafi ekki náðst, benda niðurstöður til þess að ákveðin mynstur séu til staðar. Sjónarmið og reynsla viðmælenda veittu dýpri skilning á þeim þáttum sem liggja að baki hegðun einstaklinga þegar kemur að fjárfestingum og styrktu túlkun niðurstaðna. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að margir þættir skipta máli þegar kemur að áhættutöku einstaklinga í fjárfestingum. Þessi innsýn getur nýst í stefnumótun og fjármálafræðslu til að bæta ákvarðanatöku fjárfesta. Lykilorð: Áhættusækni, áhættufælni, áhætta, fjárfestingar, fjárfestingarhegðun.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Arnar Eide Garðarsson 2001-
  • Jón Örn Ingólfsson 2000-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/50697
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/50697

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Arnar Eide Garðarsson 2001-; Jón Örn Ingólfsson 2000-. Áhættusækni Íslendinga í fjárfestingum. 2025. https://hdl.handle.net/1946/50697