Back to search

Reykjavík University

Lykilþættir í vali á kaffibirgjum : rannsóknarverkefni fyrir Ölgerðina Egil Skallagrímsson

Abstract

dc:description.abstract

Rannsókn þessi kannar hverjir veigamestu þættir eru í vali aðila á hótel- og veitingamarkaði á kaffibirgjum. Þjónustuþættirnir voru greindir út frá erlendum rannsóknum og var þeim skipt upp í sex megin þætti; verð, gæði og bragð, almenn þjónusta birgja, afhendingartíma vara, viðhalds- og viðgerðarþjónustu (við kaffivélar) og kaffivélar frá birgja. Undirþættir almennrar þjónustu voru; samskipti við söluaðila/tengilið birgja, samskipti við fjárhagsdeild/innheimtu, rafrænir reikningar og gæði vefsíðu. Þessi rannsókn var gerð fyrir Ölgerðina Egil Skallagrímsson sem varpaði fram þeirri beiðni að vilja innsýn inní hverjir veigamestu þættir væru í vali viðskiptavina þeirra innan hótel- og veitingamarkaðar á kaffibirgjum. Rannsóknin var framkvæmd með útsendingu á spurningarlista sem sendur var á 130 viðskiptavini Ölgerðarinnar innan hótel- og veitingamarkaðar. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að veigamestu þjónustuþættir í vali fyrirtækja á hótel- og veitingamarkaði á kaffibirgja eru almenn þjónusta birgja sem mælist bæði með mesta vægið sem og mikilvægasti þátturinn meðal þátttakenda. Næst mikilvægustu þættirnir eru gæði og bragð ásamt afhendingartíma vara. Verð, samskipti við sölumann/tengilið og viðhalds- og viðgerðarþjónusta (við kaffivélar) koma þar á eftir. Niðurstöður rannsóknarinnar koma að mestu heim og saman við erlendar rannsóknir sem hafa verið gerðar á viðfangsefninu. Rannsóknin varpar ljósi á þessa veigamestu þjónustuþætti sem og ánægju viðskiptavina Ölgerðarinnar á hverjum þætti fyrir sig og leiðir til að stuðla að aukinni ánægju viðskiptavina með þá þætti sem vega mest í þeirra augum. Auk þess gefur rannsóknin vísbendingar um hvernig nálgast megi nýja viðskiptavini innan hótel- og veitingamarkaðar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Inga Ragna Ingjaldsdóttir 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/49050
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/49050

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Inga Ragna Ingjaldsdóttir 1986-. Lykilþættir í vali á kaffibirgjum : rannsóknarverkefni fyrir Ölgerðina Egil Skallagrímsson. 2025. https://hdl.handle.net/1946/49050