Back to search

Reykjavík University

Stjórnunartengsl í byggingariðnaði : skoðun á samvinnu verkefnastjóra og byggingarstjóra

Abstract

dc:description.abstract

Þessi ritgerð rannsakar hvernig hægt er að samþætta stjórnunarfræðikenningar við raunveruleg verkefni í byggingariðnaðinum á Íslandi með sérstaka áherslu á samstarf milli verkefna- og byggingarstjóra. Rannsóknin beinist að þörfinni fyrir aukna skilvirkni og gæði í byggingarverkefnum og kannar hvernig fyrirtæki geta bætt samvinnu og samhæfingu til að hámarka árangur verkefna. Blandaðri aðferðafræði var beitt þar sem bæði eigindleg viðtöl við reynda stjórnendur og megindleg rafræn spurningakönnun voru nýtt til þess að safna upplýsingum um núverandi stjórnunarhætti og áskoranir í greininni. Niðurstöðurnar sýna fram á flókið samspil milli fræðilegra stjórnunarkenninga eftir Henry Mintzberg, Henri Fayol og Michael Porter og beitingu þeirra í stjórnun stórra byggingarverkefna. Þrátt fyrir að þessar kenningar veiti trausta hugmyndafræðilega undirstöðu þá krefst framkvæmd þeirra oft umtalsverðrar aðlögunar til að mæta sérstökum kröfum og breytilegu eðli byggingariðnaðarins. Rannsóknin undirstrikar mikilvægi skýrra samskipta og hlutverkaskiptingar til að draga úr ágreiningi og bæta verkefnastjórnun. Einnig er bent á þörfina fyrir stöðuga endurskoðun á stjórnunarháttum til að brúa bilið milli kenninga og framkvæmda. Niðurstöðurnar benda til þess að með því að samræma stjórnunarhlutverk út frá bæði fræðum og reynslutengdum gögnum megi bæta skilvirkni og gæði í byggingarverkefnum verulega.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Egill Arnar Sigurþórsson 1982-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/48252
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/48252

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Egill Arnar Sigurþórsson 1982-. Stjórnunartengsl í byggingariðnaði : skoðun á samvinnu verkefnastjóra og byggingarstjóra. 2024. http://hdl.handle.net/1946/48252