Back to search

Reykjavík University

Knattspyrnufélag Akureyrar í Evrópukeppni : samanburður á hlaupagögnum í leikjum KA í Evrópu og leikjum KA á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Markmið ritgerðarinnar var að rannsaka og komast að mun á milli keppna hjá Knattspyrnufélagi Akureyrar á keppnistímabilinu 2023. Á því tímabili tók liðið þátt í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu samhliða því að liðið spilaði á Íslandi. Þátttakendur í rannsókninni voru þar með allir leikmenn KA á tímabilinu eða 34 talsins. Markmið rannsóknarinnar var að athuga hvort og hvernig munur væri á hlaupatengdum hreyfibreytum eftir keppni. Gögnunum var safnað með GPS mælum sem leikmennirnir æfðu og spiluðu með í öllum leikjum. Breyturnar sem voru til samanburðar voru heildarvegalengd, hlaup á hárri ákefð, sprett vegalengd, hröðun og bremsun. Þar sem gögn voru takmörkuð í einhverjum tilfellum var meðaltölum safnað saman og þeim deilt niður á atvik eða metra á mínútu. Þá var notast við mælieiningar á mínútu svo að leikirnir væru samanburðarhæfir. Í ljós kom að ekki var marktækur munur eftir tegund keppni hvað varðar eftirfarandi breytur. Þegar meðaltölin voru borin saman kom þó í ljós að það var mis mikill munur á milli keppna eftir hreyfibreytum. Þó svo að munurinn hafi ekki verið marktækur. Þar sem takmarkanir urðu við úrvinslu gagnanna þá væri áhugavert að framkvæma slíka rannsókn og skoða önnur Íslensk lið sem hafa tekið þátt í undankeppnum Evrópu og framkvæma samanburð.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Aron Elí Kristjánsson 2001-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/47753
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/47753

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Aron Elí Kristjánsson 2001-. Knattspyrnufélag Akureyrar í Evrópukeppni : samanburður á hlaupagögnum í leikjum KA í Evrópu og leikjum KA á Íslandi. 2024. http://hdl.handle.net/1946/47753