Back to search

Reykjavík University

Upplýsingagjöf Icelandair og efnahagsleg áhrif : sjá starfsfólk Icelandair og starfsfólk hlutabréfamarkaðarins stöðu félagsins sömu augum út frá stefnumiðaðri greiningu?

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi leitast við að svara rannsóknarspurningunni: „Sjá starfsfólk Icelandair og starfsfólk hlutabréfamarkaðarins stöðu félagsins sömu augum út frá stefnumiðaðri greiningu?“ Markmið rannsóknarinnar er að leggja mat á hversu vel Icelandair upplýsir hagsmunaaðila, svo sem fjárfesta, markaðsaðila og aðra aðila á hlutabréfamarkaði. Það er mikilvægt fyrir félag eins og Icelandair að upplýsingagjöf á markaðinn sé með sem bestum hætti og þar með trúverðug. Óljósar eða ófullnægjandi upplýsingar hafa neikvæð áhrif á hlutabréfaverð og aðgengi að fjármagni í formi hlutafjár. Icelandair er eitt stærsta og þekktasta vörumerki á Íslandi og er ekki aðeins leiðandi flugfélag á Keflavíkurflugvelli, heldur hefur það einnig mikil áhrif á íslenskt efnahagslíf og samfélagið í heild. Því verður einnig greint og farið yfir þau áhrif sem fyrirtækið hefur út frá hagfræðilegu sjónarhorni. Rannsakendur gerðu eigindlega rannsókn með fjórum viðmælendum, tvo starfsmenn Icelandair og tvo aðila á fjármálamarkaði. Lagður var spurningalisti fyrir viðmælendur sem byggði á eftirfarandi tólum stefnumiðaðrar greiningar: PESTEL greining, fimm krafta líkan Porters, VRÍÓ auðlindalíkan og SVÓT greining. Með þessum hætti var hægt að fanga upplifun viðmælenda af félaginu ásamt því að fá sýn á innra og ytra umhverfi Icelandair, samkeppni, áhrifaþætti á arðsemi og eiginleika. Niðurstöðurnar leiddu í ljós ýmiss konar misræmi sem gefur vísbendingar um ófullnægjandi eða misvísandi upplýsingar á vissum sviðum. Út frá stefnumiðaðri stjórnun má því leiða að líkum að upplýsingagjöf Icelandair sé ekki háttað svo að starfsfólk og markaðsaðilar sjái félagið sömu augum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Lárus Fannar Rafnsson 2002-
  • Margrét Fríða Ólafsdóttir 2002-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/47660
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/47660

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Lárus Fannar Rafnsson 2002-; Margrét Fríða Ólafsdóttir 2002-. Upplýsingagjöf Icelandair og efnahagsleg áhrif : sjá starfsfólk Icelandair og starfsfólk hlutabréfamarkaðarins stöðu félagsins sömu augum út frá stefnumiðaðri greiningu?. 2024. http://hdl.handle.net/1946/47660