Back to search

Reykjavík University

Lánshæfismat S&P Global Ratings og íslensk bankastarfsemi : viðhorf bankaaðila til mats - og eftirlitsaðila og áhrif lánshæfismats á starfsemi bankanna

Abstract

dc:description.abstract

Niðurstöður matsfyrirtækja um lánshæfi fjármálastofnanna hafa víðtæk áhrif á starfsemi þeirra. Innan bankageirans hér á landi hefur verið til umræðu hvort lánshæfismat bankanna, þá sérstaklega frá S&P Global Ratings, sé sanngjarnt. Tilgangur þessarar rannsóknar er því að kanna hvaða viðhorf bankaaðilar hafa til lánshæfismats S&P Global Ratings og að kanna hvaða og hversu mikil áhrif lánshæfismat þeirra hafi á starfsemi bankanna. Var sá hluti rannsóknarinnar þríþættur, en rannsakendur leituðust við að kanna áhrif þess ýmist á almenna starfsemi bankanna, eiginfjárhlutfall þeirra og aðrar fjármálaákvarðanir. Þá leituðust rannsakendur einnig eftir því að kanna hvert umfang slíkra áhrifa væri. Eiginfjárkrafa Seðlabanka Íslands á hendur bankanna er í alþjóðlegu samhengi fremur há. Þar að auki eru bankarnir með mun hærra eiginfjárhlutfall en regluverkið gerir kröfu um. Seinna markmið rannsóknarinnar er því að kanna viðhorf bankaaðila til eiginfjárkröfu regluverksins og hvort lánshæfismat S&P Global Ratings hafi áhrif á hversu háan eiginfjárauka bankarnir setja sér umfram kröfur regluverksins. Framkvæmd var eigindleg rannsókn þar sem niðurstöður leiddu í ljós að bankaaðilar telja lánshæfismat S&P vera full svartsýnt á efnahagslegar horfur á Íslandi. Lánshæfismatið hefur áhrif á starfsemi bankanna í gegnum fjármögnunarhlið þeirra. Að auki er horft til lánshæfismatsins sem hliðarskilyrði þegar ákvörðun er tekin um eiginfjárauka bankanna umfram kröfur regluverksins. Bankaaðilar sýndu aftur á móti mikinn skilning á hárri eiginfjárkröfu Seðlabankans, en sýndu fram á löngun þess að draga úr eiginfjárbindingu bankanna til að auka arðsemi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Auður Rán Pálsdóttir 2002-
  • Gígja Hafsteinsdóttir 2002-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/47641
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/47641

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Auður Rán Pálsdóttir 2002-; Gígja Hafsteinsdóttir 2002-. Lánshæfismat S&P Global Ratings og íslensk bankastarfsemi : viðhorf bankaaðila til mats - og eftirlitsaðila og áhrif lánshæfismats á starfsemi bankanna. 2024. http://hdl.handle.net/1946/47641