Back to search

Reykjavík University

Skilvirkni íslenska hlutabréfamarkaðarins : atburðarrannsókn á skilvirkni íslenska hlutabréfamarkaðarins árin 2021-2023 með tilkomu frítekjumarks fjármagnstekna af söluhagnaði hlutabréfa og arðs

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar rannsóknar er að rýna í skilvirkni íslenska hlutabréfamarkaðarins og rannsaka hvort tilkoma frítekjumarks fjármagnstekna af söluhagnaði hlutabréfa og arðs, sem tók gildi 1. janúar 2021, hafi haft marktæk áhrif á hlutabréfaverð skráðra félaga. Breytingar voru gerðar á lögum nr. 90/2003 um tekjuskatt sem fólu í sér að frítekjumark fjármagnstekna yrði tvöfaldað, eða hækkað úr 150.000 krónum í 300.000 krónur. Jafnframt að það yrði útvíkkað og næði þannig til söluhagnaðar hlutabréfa og arðs. Tilkoma þessarar skattaívilnunar var til hvatningar aukinnar þátttöku almennra fjárfesta á íslenska hlutabréfamarkaðinum. Framkvæmd var atburðarrannsókn á tímabilinu 2016 til 2023 til athugunar á áhrifum tilkomu frítekjumarks fjármagnstekna af söluhagnaði hlutabréfa og arðstekna á markaðsvirði hlutabréfa og viðskipti með þau á markaðinum. Einnig var leitast við að varpa ljósi á það hvort kenningin um skilvirkni markaða standist á hlutabréfamarkaðinum hér á landi. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að íslenski hlutabréfamarkaðurinn sé óskilvirkur með hlutabréfaviðskipti skráðra félaga með tilliti til rannsóknaratburðarins. Ásamt því fengust ekki marktæk áhrif af tilkomu frítekjumarksins hjá meirihluta félaga í rannsókninni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Guðlaug Erla Hlynsdóttir 2001-
  • Margrét Lovísa Jónasdóttir 2002-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/47587
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/47587

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðlaug Erla Hlynsdóttir 2001-; Margrét Lovísa Jónasdóttir 2002-. Skilvirkni íslenska hlutabréfamarkaðarins : atburðarrannsókn á skilvirkni íslenska hlutabréfamarkaðarins árin 2021-2023 með tilkomu frítekjumarks fjármagnstekna af söluhagnaði hlutabréfa og arðs. 2024. http://hdl.handle.net/1946/47587