Back to search

Reykjavík University

Réttindi barna og þvingunarúrræði í barnavernd : heimildir barnaverndarlaga til beitingar þvingunar gagnvart börnum

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð er leitast eftir því að kanna hvort heimild barnaverndarlaga um beitingu þvingana sé nægilega skýr og að hún samræmist þeim réttindum sem börn eiga að njóta. Réttindi barna eru vernduð á alþjóðlegum vettvangi enda er um viðkvæman hóp einstaklinga að ræða. Baráttan um réttindi barna á sér langan undanfara og tóku þau miklum breytingum við samþykkt Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins. Því var lögð áhersla á það í ritgerðinni að fjalla um helstu grundvallarréttindi barna. Barnaverndarlög nr. 80/2002, kveða á um rétt barna til verndar og umönnunar. Í 82. gr. barnaverndarlaga er síðan að finna ákvæði sem kveður á um heimild til að beita börn þvingunum og á ákvæðið rætur að rekja til norskra barnaverndarlaga. Í ritgerðinni er því varpað ljósi á ólíkar heimildir til beitingar þvingana gagnvart mismunandi hópum einstaklinga í viðkvæmri stöðu. Þar sem megintilgangur ritgerðarinnar er að meta skýrleika ákvæðisins um framkvæmd beitingar þvingana, var því fjallað um helstu meginreglur norskra barnaverndarlaga og gerður samanburður við íslensku lögin. Í niðurstöðum ritgerðarinnar kemst höfundur að þeirri niðurstöðu að þörf sé á úrbótum hvað varðar ákvæði barnaverndarlaga sem heimila beitingu þvingana. Að mati höfundar er heimildin til beitingar þvingana í barnaverndarlögum of matskennd, en sú ályktun er aðallega dregin af nýlegum breytingum á norskum barnaverndarlögum. Þá er brýnt að sett verði reglugerð um framkvæmd beitingu þvingana eins og barnaverndarlög gera ráð fyrir. Þá væri hægt að gera enn betur og setja sérlög líkt og eru til staðar í Svíþjóð um framkvæmd þvingana.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Valdís Ósk Óladóttir 1998-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/47413
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/47413

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Valdís Ósk Óladóttir 1998-. Réttindi barna og þvingunarúrræði í barnavernd : heimildir barnaverndarlaga til beitingar þvingunar gagnvart börnum. 2024. http://hdl.handle.net/1946/47413