Back to search

Reykjavík University

Gullhúðun EES-reglna : skoðun á innleiðingarfrumvörpum EES-gerða í landsrétt á málefnasviði fjármála- og efnahagsráðuneytisins með tilliti til gullhúðunar

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi fjallar um gullhúðun EES-reglna, en gullhúðun er hugtak sem hefur verið notað yfir það þegar stjórnvöld einstakra ríkja ganga lengra við innleiðingu afleiddrar löggjafar í sinn landsrétt og setja íþyngjandi ákvæði umfram lágmarkskröfur þeirrar afleiddu löggjafar sem verið er að innleiða í landsrétt. Gullhúðun er ekki óheimil hér á landi, en ef sú leið er farin við innleiðingu EES-gerða í landsrétt ber að gera það í samræmi við kröfur 37. gr. laga um þingsköp Alþingis, sbr. einnig 8. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála. Fyrrgreindar reglur kveða á um að gullhúðun skuli vera rökstudd og tilgreind í innleiðingarfrumvarpi. Meginviðfangsefni ritgerðar þessarar er að skoða innleiðingarfrumvörp EES-gerða í landsrétt á málefnasviði fjármála- og efnahagsráðuneytisins frá 144. löggjafarþingi til 153. löggjafarþings með tilliti til þess hvort gullhúðun hafi verið beitt við innleiðingu og hvort hún hafi verið í samræmi við fyrrgreindar kröfur laga um þingsköp Alþingis og reglna um þinglega meðferð EES-mála. Helstu niðurstöður þeirrar rannsóknar eru að gullhúðun var beitt í rúmlega 50% tilvika, og af þeim tilvikum þar sem gullhúðun var beitt var gullhúðunin ekki rökstudd og tilgreind í 73% tilvika. Þá var framkvæmd annarra ríkja skoðuð með tilliti til gullhúðunar, sú skoðun leiddi í ljós að Bretland var mjög framarlega í því sem við kemur gullhúðun og hægt að draga lærdóm af því sem þar var vel gert. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar varpa ljósi á það að margt megi betur fara hvað varðar innleiðingu EES-gerða í landsrétt með tilliti til gullhúðunar, og gerð hefur verið grein fyrir tillögum að úrbótum sem höfundur vonar að komi að góðum notum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigrún Anna Gísladóttir 2000-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/47400
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/47400

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigrún Anna Gísladóttir 2000-. Gullhúðun EES-reglna : skoðun á innleiðingarfrumvörpum EES-gerða í landsrétt á málefnasviði fjármála- og efnahagsráðuneytisins með tilliti til gullhúðunar. 2024. http://hdl.handle.net/1946/47400