Reykjavík University
Samanburður á banni við innherjasvikum á verðbréfamörkuðum og heildsöluorkumörkuðum í Evrópu
Abstract
dc:description.abstractÁ verðbréfamörkuðum og heildsöluorkumörkuðum er átt í viðskiptum með fjármálagerninga, vörurnar sem þeir fjármálagerningar grundvallast á eru hins vegar töluvert frábrugðnar hvor annarri. Eftir sem áður þurfa að vera til staðar reglur sem sporna gegn ótilhlýðilegri markaðshegðun sem er til þess fallin að grafa undan skilvirkni markaðarins. Komið var á fót sérstöku regluverki utan um heildsöluorkumarkaði sem nokkurskonar framlengingu á því markaðssvika regluverki sem gildir á verðbréfamörkuðum. Fyrir verðbréfamarkaði innan Evrópusambandsins gildir reglugerð nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR). Um heildsöluorkumarkaði innan aðildarríkja Evrópusambandsins gildir fyrrgreind reglugerð að nokkru leyti, sem og reglugerð nr. 1227/2011 um heilleika og gagnsæi á heildsöluorkumarkaði (REMIT). Meginmarkmið þessarar ritgerðar er að bera saman bann við innherjasvikum á grundvelli áðurnefndra reglugerða, sérstaklega í ljósi þess að innleiðing REMIT í íslensk lög er á döfinni. Farið er yfir þróun regluverksins fyrir viðkomandi markað með áherslu á þeirri þróun sem átti sér stað á heildsöluorkumörkuðum. Til þess að greina bannið með fullnægjandi hætti er fyrst afmarkað hvað séu innherjaupplýsingar samkvæmt sitt hvorri reglugerð fyrir sig. Báðar gera sambærilega áskilnaði um skilyrði innherjaupplýsinga en einnig koma fram viðbótarskilyrði í REMIT vegna eðlis heildsöluorkumarkaða. Skilyrðin sem þarf að uppfylla til að um innherjasvik sé að ræða eru eðlislík þar sem notkun innherjaupplýsinga er lögð til grundvallar sem forsenda innherjasvika í báðum reglugerðunum. Helstu frávikin eru að finna í undantekningunum. Margar hverjar af þeim undantekningum sem REMIT kveður á um eru sértækar fyrir heildsöluorkumarkaðinn en af orðalagi ákvæðanna má einnig ráða að bannið samkvæmt REMIT sé víðtækara heldur en í MAR. Lítið er um dómafordæmi Evrópudómstólsins og aðildarríkja varðandi beitingu á banni við innherjasvikum á grundvelli REMIT og því er vandasamt að segja til um það hvernig framkvæmd þess sé háttað. Draga má þá ályktun út frá framsetningu og orðalagi bannsins að beiting þess á heildsöluorkumörkuðum samsvari beitingu bannsins sem gildir á verðbréfamörkuðum á grundvelli MAR, þó með hliðsjón af mismunandi eðli markaðanna.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Aron Sigurvinsson 1998-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/44588
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/44588