Reykjavík University
Áhrif evrópskrar löggjafar um sjálfbærni á íslensk fjármálafyrirtæki
Abstract
dc:description.abstractÁ síðustu árum hefur ESB gert loftslagsmál eitt af forgangsverkefnum sínum. Eftir gildistöku Parísarsamningsins hefur ESB sett umfangsmikla löggjöf á sviði sjálfbærra fjármála. Í ritgerð þessari verða þrár nýjar reglugerðir ESB á sviði sjálfbærra fjármála til umfjöllunar. Heiti ritgerðarinnar er „Áhrif evrópskrar löggjafar um sjálfbærni á íslensk fjármálafyrirtæki“, en meginmarkmið ritgerðarinnar er að rannsaka praktísk áhrif reglugerðanna á íslensk fjármálafyrirtæki. Í upphafi ritgerðar er stuttlega farið yfir sjálfbæra þróun og sjálfbær fjármál. Að því loknu er farið ítarlega yfir reglugerðirnar og skoðuð viðeigandi ákvæði sem og skilyrðin sem þau kveða á um. Í ljósi meginmarkmiðs ritgerðarinnar er ekki aðeins varpað ljósi á hvaða nýju skyldum fjármálafyrirtæki þurfa að fylgja á grundvelli reglugerðanna heldur jafnframt skoðað hvaða áskoranir fylgja innleiðingu reglugerðanna í starfsemi íslenskra fjármálafyrirtækja. Þá er jafnframt skoðað hvort það geti reynst íslenskum fjármálafyrirtækjum hagnýtt að ganga lengra í upplýsingagjöf sinni. Niðurstaða ritgerðarinnar er að innleiðing reglugerða ESB á sviði sjálfbærra fjármála geti reynst íslenskum fjármálafyrirtækjum umfangsmikið verkefni. Hins vegar veltur það að miklu leyti á innviðum fjármálafyrirtækjanna hversu umfangsmikil áskorunin verður. Jafnframt er komist að þeirri niðurstöðu að fjármálafyrirtæki geti nýtt löggjöfina til þess að styðja við viðskiptavini á sjálfbærnivegferð þeirra og að tækifæri gætu falist í því að þau ganga lengra í upplýsingagjöf sinni.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Geirmundur Ingi Eiríksson 1998-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/44427
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/44427