Back to search

Reykjavík University

Grænþvottur : umhverfisfullyrðingar í markaðssetningu út frá sjónarhóli neytendaverndar

Abstract

dc:description.abstract

Grænþvottur er hugtak sem er mikið í umræðu í nútíma samfélagi. Af völdum grænþvottar hefur traust neytenda til umhverfisfullyrðinga fyrirtækja í markaðssetningu farið dvínandi. Rannsóknir sýna að vaxandi fjöldi neytenda vilja vera umhverfisvænni í neysluhegðun sinni. Í þessari ritgerð snýr grænþvottur að þeim villandi, óskýru eða röngu umhverfisfullyrðingum sem fyrirtæki setja fram í markaðssetningu sinni. Markmiðið er að skoða þá ramma sem eru til staðar í íslenskri neytendalöggjöf varðandi upplýsingagjöf fyrirtækja í markaðssetningu og hvort umbóta sé þörf. Í fyrsta kafla er hugtakið „grænþvottur“ skilgreint og ásamt því eru áhrif þess og birtingarmyndir skoðaðar. Þar á eftir er skoðað hvaða reglur og viðmið eru til staðar á alþjóðasviði sem vinna á móti grænþvotti og í framhaldi af því er íslensk neytendalöggjöf skoðuð. Framkvæmd reglna verður skoðuð með ákvörðunum Neytendastofu ásamt erlendum grænþvottar málum. Að lokum eru þær breytingar sem eru í vændum með nýjum tilskipunum frá Evrópusambandinu skoðaðar og áhrif þeirra. Að mati höfundar er nauðsynlegt að sporna betur við grænþvotti svo framþróun sjálfbærar þróunar geti átt sér stað. Neytendur sem vilja leggja sitt af mörkum til umhverfismála eiga ekki að þurfa að efast um hvernær kaupin þeirra voru raunverulega græn. Aðeins tíminn getur leitt í ljós hvort og þá hvernig alþjóðasamfélaginu tekst að útrýma grænþvotti.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Iðunn Helgadóttir 1997-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/44397
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/44397

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Iðunn Helgadóttir 1997-. Grænþvottur : umhverfisfullyrðingar í markaðssetningu út frá sjónarhóli neytendaverndar. 2023. http://hdl.handle.net/1946/44397