Reykjavík University
Réttarstaða aðila við lok lóðarleigusamnings : hvað verður um mannvirki leigutaka?
Abstract
dc:description.abstractRéttarstaða aðila við lok lóðarleigusamnings. Hvað verður um mannvirki leigutaka? Viðfangsefni ritgerðarinnar snýr að lóðarleigusamningum á Íslandi. Farið verður yfir allt ferlið, frá stofnun samnings og þar til hann hefur þjónað tilgangi sínum. Einnig verður fjallað um réttarheimildir tengdar viðfangsefninu, en þær eru af skornum skammti hér á landi. Skoðuð verða sérstaklega þau álit sem geta komið upp hjá leigutaka, þegar lóðarleigusamningurinn hefur runnið sitt skeið. Fjallað verður um úrræði leigutaka gagnvart leigusala, ef til þess kemur að lóðarleigusamningurinn verði ekki endurnýjaður og þá m.t.t. þeirra mannvirkja sem á lóðinni standa. Þá verður fjallað um þau úrræði sem leigusali getur gripið til, ef hann hyggst ekki láta mannvirkið standa áfram á landareign sinni. Höfundur kannaði og bar saman mismunandi samningsákvæði hjá 10 mismunandi sveitarfélögum, með það að markmiði að kanna hvort þar væri að finna ákvæði sem skyldaði sveitarfélagið til að kaupa þau mannvirki sem á lóðinni stæðu við lok samningstímans. Með því fékk höfundur einn eldri samning og einn nýjan samning frá hverju sveitarfélaganna til samanburðar. Í lang flestum tilfellum var að finna ákvæði um kaupskyldu sveitarfélaganna á þeim mannvirkjum sem stóðu á lóðunum, ef til þess kæmi, að samningarnir væru ekki endurnýjaðir, sem tryggir réttarstöðu leigutaka að miklu leyti. Það breytir því þó ekki, að réttarstaða aðila við lok samningstíma er ekki tryggð á grundvelli laga, heldur ræðst hún að öllu leyti á grundvelli samningsins. Þau mannvirki sem á lóðinni standa eru oftar en ekki metin á tugi milljóna. Þessir fjármunir geta glatast ef ekki er samið um annað. Höfundur komst að þeirri niðurstöðu að réttarstaða aðila við lok lóðarleigusamnings sé ekki nægilega trygg og mikil þörf sé á heildstæðum lagaramma sem tryggir stöðu þeirra betur, því um mikla fjármuni er að ræða sem snerta lang flesta fasteignaeigendur hér á landi. Það verður að tryggja með lögum, en ekki einhliða samningsákvæðum landeiganda.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Stefán Þórarinsson 1988-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/44376
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/44376