Reykjavík University
Réttarstaða fylgdarlausra barna í leit að alþjóðlegri vernd : uppfyllir Ísland skyldur sínar samkvæmt Barnasáttmálanum?
Abstract
dc:description.abstractMeð tilkomu laga um útlendinga, nr. 80/2016 var sérstök áhersla lögð á að bæta réttarstöðu fylgdarlausra barna sem sækja um alþjóðlega vernd á Íslandi. Hafa lögin að geyma orðskýringu á því hvaða einstaklingur telst vera fylgdarlaust barn, auk ákvæða um réttarstöðu þessara barna hér á landi og til hvers ber að líta þegar fylgdarlaust barn kemur inn á yfirráðasvæði Íslands og sækir um alþjóðlega vernd. Njóta þessi börn ákveðinnar sérstöðu í samfélaginu þar sem þau tilheyra hópi sem telst vera sérstaklega viðkvæmur í skilningi útlendingalaga. Ísland lögfesti barnasáttmálann með lögum nr. 19/2013, sem hefur þýðingarmiklu hlutverki að gegna við að tryggja börnum, sem heyra undir lögsögu aðildarríkja sjálfstæð réttindi, enda eini alþjóðasamningurinn sem fjallar eingöngu um börn. Megintilgangur ritgerðarinnar er að varpa ljósi á réttarstöðu fylgdarlausra barna á Íslandi og svara þeirri spurningu hvort íslensk stjórnvöld uppfylli skuldbindingar sínar samkvæmt barnasáttmálanum. Þannig var stefnt að því að draga saman helstu grundvallarákvæði sáttmálans og gera sérstök skil á þeim ákvæðum sem þar koma fram og varða sérstaklega réttindi fylgdarlausra barna. Í því ljósi var gerð tilraun til þess að setja fram heildstæða mynd af því hvaða réttinda fylgdarlaus börn njóta á Íslandi og rekja eins og unnt var, högun á því umsóknarferli sem fylgdarlaus börn ganga í gegnum við umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi. Verða fyrrgreind umfjöllunarefni meginþungi ritgerðarinnar. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru að íslensk löggjöf hefur að geyma öll helstu grundvallarviðmið barnasáttmálans og tekur þ.a.l. mið af honum. Framkvæmdin virðist þó ekki ávallt endurspegla lögin og þar með barnasáttmálann í öllum tilvikum. Skýrist það m.a. af því hversu nýr af nálinni málaflokkurinn er á Íslandi og standa íslensk stjórnvöld þ.a.l. frammi fyrir nýjum áskorunum í málsmeðferð og þjónustu í kringum þennan sérstaklega viðkvæma hóp.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Dagbjört Dögg Karlsdóttir 1999-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/44374
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/44374