Reykjavík University
Er forsetinn konungur Íslands? : vangaveltur um tilurð, grundvöll og túlkun stjórnarskrár Íslands.
Abstract
dc:description.abstractEr forsetinn konungur Íslands? Vangaveltur um tilurð, grundvöll og túlkun stjórnarskrár Íslands. Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands hefur verið í gildi allt frá lýðveldisstofnun árið 1944, þrátt fyrir að upphaflega hafi hún verið ætluð til bráðabirgða. Þegar Ísland varð lýðveldi og forseti kom í stað konungs var engu breytt frá stjórnarskrá konungsríkisins Íslands frá árinu 1920, nema því sem nauðsynlegt var talið. Frá því að stjórnarskráin tók gildi árið 1944, hefur nokkrum sinnum verið hafist handa við að endurskoða hana, en þrátt fyrir það hefur slík heildarendurskoðun aldrei skilað árangri. Ísland hefur því enn í dag stjórnarskrá sem samin var fyrir annað land, á öðrum forsendum, á annarri öld. Fyrir vikið má segja að Íslendingar hafi setið eftir með óskýra mynd af hlutverki forseta, þar sem honum eru falin tiltekin völd í stjórnarskránni sem önnur ákvæði taka svo frá honum. Hvað gerir forseti Íslands í raun? Er hann valdalaus líkt og konungur eða hefur hann einhver völd? Óskýrleiki stjórnarskrárinnar varðandi hlutverk forseta hefur haft afleiðingar í för með sér og skapað ringulreið í þjóðfélaginu, ekki síst á Alþingi, en fjallað er um dæmi þess í ritgerðinni. Í þessari ritgerð eru stjórnarskrár Íslands og Danmerkur bornar saman, með áherslu á forseta- og konungsákvæði. Sérstaklega verða tekin fyrir nánast samhljóða ákvæði 29. gr. íslensku stjórnarskrárinnar og 24. gr. þeirrar dönsku, og fjallað um náðun og uppreist æru. Þá verður rýnt í það hvernig ein stjórnarathöfn, ein undirskrift forseta, gat komið af stað atburðarrás sem olli almenningi svo miklum ama, að sitjandi ríkisstjórn féll og stórtækar lagabreytingar fóru hratt í gegn, allt vegna þess að stjórnarskráin er ekki nægjanlega fyrirsjáanleg.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Erla Hadda Franksdóttir 1988-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/44371
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/44371