Abstract
dc:description.abstractEfni þessarar ritgerðar eru handtökur og er markmið þríþætt. Í fyrsta lagi er leitað svara við því hvað handtöku eru, þ.e. hvert eðli og inntak handtöku er. Í öðru lagi eru handtökuheimildir lögreglu skýrðar. Útlistað er í hvaða tilvikum og hvaða skilyrði þarf að uppfylla til að framkvæma handtöku. Í þriðja lagi er litið til þess hvenær einstaklingar teljast handteknir. Í því samhengi verður dómaframkvæmd borin saman við skrif og skoðanir fræðimanna. Leitað er sérstaklega svara við því hvort upp geti komið aðstæður þar sem ekki er hafið yfir vafa hvort einstaklingur ser handtekinn eða ekki. Handtökur eru grundvallarbreyting á réttarstöðu einstaklings. Við handtöku er einstaklingur sviptur stjórnarskrárvörðu persónufrelsi sínu, en frá sama tímamarki nýtur viðkomandi réttarstöðu handtekins, og eftir atvikum réttarstöðu sakbornings. Handtökuheimildir eru aðallega veittar til handa lögreglu, oftar en ekki í tengslum við rannsókn sakamáls þegar einstaklingur er grunaður um refsiverða háttsemi. Handtökuheimildir eru í lögum um meðferð sakamála en einnig lögreglulögum ef handtaka tengist ekki rannsókn sakamáls. Handtöku verður að vera hægt að heimfæra undir lögbundna handtökuheimild ásamt því að rökstuddur grunur þarf að vera að baki handtöku. Þá verður handtaka alltaf að vera talin nauðsynleg. Meðal niðurstaðna er að í framkvæmd handtöku virðast geta komið upp tilvik þar sem ekki er hafið yfir skynsamlegan vafa hvort einstaklingur sé í raun handtekinn eða ekki. Dómstólar virðast eftirláta lögreglu umtalsvert svigrúm og telja einstaklinga ekki handtekna fyrr en kemur til líkamlegrar valdbeitingar. Í fræðilegri umfjöllun koma þau sjónarmið fram að þessi skýring sé ótæk og bent á að einstaklingar geti verið sviptir frelsi sínu við fyrra tímamark, þ.e. með skipunum lögreglu sem verður fylgt eftir með valdi. Það er ein meginniðurstaðan að tilefni sé til að skýra tímamark handtöku, t.d. með lagabreytingu sem skilgreinir hvenær lögregla hefur handtekið einstakling.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Halldór Tumi Ólason 2001-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/44361
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/44361