Reykjavík University
Þátttaka kvenna á hlutabréfamarkaði á Íslandi : er munur á áhættusækni kynjanna þegar kemur að fjárfestingum í hlutabréfum?
Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar rannsóknarverkefnis er að varpa ljósi á þátttöku kvenna á hlutabréfamarkaði og skoða mun á áhættusækni kynjanna í hlutabréfaviðskiptum. Mikil aukning hefur verið í þátttöku á hlutabréfamarkaði síðastliðin ár og náði aukningin nýjum hæðum þegar heimsfaraldurinn Covid-19 skall á. Aftur á móti sýna töluleg gögn fram á að konur eru í miklum minnihluta þegar kemur að þátttöku á hlutabréfamarkaði á Íslandi og er kynjahlutfallið yfirleitt um 70% karlar og 30% konur sem taka þátt á markaðinum og í hlutafjárútboðum. Ástæður fyrir þessari kynbundnu hlutfallsskekkju geta verið margvíslegar en í þessari rannsókn verður skoðað hvort ólík áhættusækni kynjanna kunni að vera meginbreytan sem hefur áhrif á kynjaskekkjuna. Framkvæmd var eigindleg rannsókn við vinnslu þessa verkefnis ásamt því að rýna í töluleg gögn frá hlutafjárútboðum sem fengin voru frá fyrirtækjaráðgjöf félaganna. Tekin voru sex djúpviðtöl við aðila sem tengjast og starfa á fjármálamarkaði hérlendis. Niðurstöður leiddu í ljós að karlar eru mun virkari í hlutabréfaviðskiptum en konur og kann áhættufælni kvenna að vera stór breyta sem hefur áhrif á að skekkja sé í þátttökuhlutfalli á milli kynja að mati þátttakenda. Ásamt því sýna niðurstöður að áhættufælni er ekki eina breytan sem kann að hafa áhrif á þátttökuhlutfall kvenna. Aðrir þættir sem hafa áhrif, að mati viðmælenda, eru meðal annars skortur á fyrirmyndum, staðalímyndir og saga.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Birta María Birnisdóttir 2001-
- Elín Gná Sigurðardóttir Blöndal 2001-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/44284
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/44284