Back to search

Reykjavík University

Hjartsláttur hagkerfisins : ný nálgun til að meta verðbólguvæntingar út frá verðbólguálagi á skuldabréfamarkaði með leiðréttingu fyrir heildarálagi

Abstract

dc:description.abstract

Verðbólguvæntingar spila lykilþátt í starfsemi hagkerfisins þar sem þær eru einn af mikilvægustu áhrifaþáttum verðbólgu og nauðsynlegt fyrir seðlabanka að taka tillit til þeirra við ákvörðunartöku. Samt sem áður hafa verið gerðar fáar rannsóknir á verðbólguvæntingum á Íslandi og sérstaklega út frá íslenska skuldabréfamarkaðnum. Mikil umræða hefur skapast meðal hagfræðinga um marktækni mælikvarða á verðbólguvæntingar og þrátt fyrir mikilvægi þeirra eru þeir ekki á einu máli. Ritgerðin skiptist í tvennt, annars vegar í fræðilega umfjöllun og hins vegar í tölfræðirannsókn, þar sem mismunandi rannsóknarspurningar eru spurðar í hvorum hluta. Í fyrri hluta ritgerðarinnar er farið yfir mismunandi mælikvarða verðbólguvæntinga, niðurstöður spurningakannana til heimila, fyrirtækja og markaðsaðila annars vegar og verðbólguálag á skuldabréfamörkuðum hins vegar. Þar kemur í ljós að mælingar á verðbólguvæntingum út frá verðbólguálagi á skuldabréfamarkaðnum veitir peningastefnu tíðari og marktækari upplýsingar um verðbólguvæntingar hverju sinni. Markmið rannsóknarinnar er að finna út verðbólguvæntingar út frá verðbólguálagi á íslenskum skuldabréfamarkaði í umhverfi óþekktra breyta, verðbólguáhættuálagi og seljanleikaálagi. Niðurstöður tölfræðirannsóknarinnar bendir til þess að flöktið sem metið er með aðferð veldisvísa GARCH (e. exponential GARCH) er góð nálgunarbreyta á seljanleikaálagi. Verðbólguálagið er síðan leiðrétt fyrir seljanleika- og verðbólguáhættuálagi. Undirliggjandi verðbólguvæntingar eru síðan metnar út frá leiðréttu verðbólguálagi með aðferð ástandsrúms (e. state-space) og Kalman-síu. Niðurstöðurnar benda til þess að verðbólguálagið vanmat verðbólguvæntingar vegna aukins seljanleikaálags og ofmat verðbólguvæntingar vegna aukins verðbólguáhættuálags yfir ákveðin tímabil. Til þess að meta verðbólguvæntingar út frá verðbólguálaginu reynist nauðsynlegt að leiðrétta fyrir heildarálaginu. Lykilorð eru: verðbólguvæntingar, verðbólguálag, skuldabréfamarkaður, seljanleikaálag, verðbólguáhættuálag, ástandsrúm, kalman-sía, veldisvísa GARCH.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Birta Björk Haraldsdóttir 2001-
  • Hildur Sif Hilmarsdóttir 1999-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/44276
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/44276

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Birta Björk Haraldsdóttir 2001-; Hildur Sif Hilmarsdóttir 1999-. Hjartsláttur hagkerfisins : ný nálgun til að meta verðbólguvæntingar út frá verðbólguálagi á skuldabréfamarkaði með leiðréttingu fyrir heildarálagi. 2023. http://hdl.handle.net/1946/44276