Reykjavík University
Kostnaðaráætlanir hjá Vegagerðinni : aðferðir til að áætla ófyrirséðan kostnað eftir hönnunarstigum
Abstract
dc:description.abstractÍ rannsókn þessari verða skoðaðar kostnaðaráætlanir hjá Vegagerðinni, en rannsóknir hafa leitt það í ljós að opinber verkefni eiga það til að fara fram úr kostnaðaráætlunum. Rannsóknir á samgöngumannvirkjum hafa sýnt að allt að 9 af hverjum 10 kostnaðaráætlunum verkefna fara fram úr áætlun og er skýringin oft á tíðum talin vera ofurbjartsýni á verkefnin og gerðar eru óraunhæfar áætlanir. Í verkefninu verða eftirfarandi atriði tekin fyrir: • Kostnaðaráætlanir á mismunandi hönnunarstigum voru skoðaðar og gerð grein fyrir hversu mikil framúrkeyrsla er í verkefnum Vegagerðarinnar eftir þeim. • Hvernig kostnaður á samgönguáætlun þróast með tíma, frá upphafi hönnunar til verkframkvæmda. • Aðferðir til að áætla ófyrirséðan kostnað í verkefnum og gerð tillaga að samræmingu verklags á öllum hönnunarstigum Vegagerðarinnar. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að almennt eru kostnaðaráætlanir fyrir verkhönnun nokkuð góðar, þrátt fyrir að hátt hlutfall verkefna fari yfir kostnaðaráætlun þá er meðaltal yfirkeyrslu ekki mjög hátt. Hins vegar eru kostnaðaráætlanir fyrir frumdrög ekki nógu góðar og mikil tækifæri til úrbóta þar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Birgitta Rán Ásgeirsdóttir 1987-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/43306
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/43306