Back to search

Reykjavík University

Greiðsla sanngirnisbóta á Íslandi : er tilefni til breytinga á íslenskri löggjöf?

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar ritgerðar er að skoða vægi skýrslna vistheimilanefndar og annarra nefnda á tilteknum heimilum/stofnunum varðandi möguleika fyrrum vistmanna á að geta sótt um sanngirnisbætur. Í því samhengi verður kannað við hvaða aðstæður sanngirnisbætur hafa verið greiddar og hvað hafi þurft að koma til. Í því felst að rannsaka hvort fyrrum vistmenn vistheimila hér á landi geti átt bótarétt, hvort sem um börn eða fullorðna er að ræða og hvort sem þeir einstaklingar eru fatlaðir eða ekki. Í því felst einnig að rannsaka vægi skýrslna vistheimilanefnda og annarra nefnda við að staðreyna bótarétt. Það er, hvort niðurstöður skýrslnanna hafi, þegar allt kemur til alls, í reynd haft einhver áhrif á hvort tilteknir einstaklingar ættu rétt til bóta. Þá er einnig markmið þessarar ritgerðar að koma með tillögur að breyttri framkvæmd við greiðslu sanngirnisbóta hér á landi. Helstu niðurstöður eru þær að þegar á heildina er litið þá er vægi skýrslnanna þegar kemur að ákvörðun um hvort umsækjandi um sanngirnisbætur eigi rétt til bóta óverulegt. Aftur á móti virðist sem frekar sé litið til skýrslnanna þegar ákvörðun er tekin um hver fjárhæð bóta eigi að vera. Í ljósi þess að framkvæmdin sýnir að vægi skýrslnanna sé ekki ýkja mikið þegar allt kemur til alls við ákvörðun um hvort einstaklingur eigi bótarétt eða ekki er mat höfundar að óþarft sé að láta könnun á tilteknu heimili vera undanfara fyrir því að einstaklingar geti krafist sanngirnisbóta. Þá kemur höfundur með tillögur að breyttri framkvæmd við greiðslu sanngirnisbóta sem hann telur að muni leiða til gagnsærri málsmeðferðar og aukins jafnræðis.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Anna Sofía Rosdahl 1993-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/43246
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/43246

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Anna Sofía Rosdahl 1993-. Greiðsla sanngirnisbóta á Íslandi : er tilefni til breytinga á íslenskri löggjöf?. 2023. http://hdl.handle.net/1946/43246