Back to search

Reykjavík University

Lýðheilsa eldri borgara : íþróttafélög og bæjaryfirvöld í þágu eldri borgara

Abstract

dc:description.abstract

Á undanförnum áratugum hefur verið mikið rætt um lýðheilsu eldri borgara og hvaða áhrif hún hefur á samfélagið og eldri borgarana sjálfa. Lýðheilsa eldri borgara kemur okkur öllum við og þá sér í lagi ríkisvaldinu og sveitarfélögum. Framboð á hreyfingu þarf að vera fjölbreytt, faglegt en einnig þarf að vera í boði hreyfing fyrir þá sem minna mega sín t.d. hvað varðar fjárhagslega stöðu. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvort íþróttafélögin í Reykjanesbæ, í fullu samstarfi við bæjaryfirvöld, gætu boðið upp á fjölbreytta hreyfingu fyrir eldri borgara gjaldfrjálst og að allir aðilar myndu hagnast á samstarfinu sem slíku. Tekin voru viðtöl við eldri borgara sem stunda reglulega hreyfingu og við þá sem stunda ekki reglulega hreyfingu. Einnig voru tekin viðtöl við alla forsvarsmenn íþróttafélaganna í Reykjanesbæ; Keflavík, Njarðvík og ÍRB. Forsvarsmenn íþróttafélagana voru jákvæðir um að virkja slíkt starf innan félagana og fannst eðlilegt að íþróttahreyfingin standi á bak við slíkt starf með aðstoð bæjaryfirvalda. Að lokum var hugmynd þessi og niðurstöður ritgerðarinnar kynntar fyrir formanni bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, Friðjóni Einarssyni. Niðurstöður sýndu að eldri borgarar eru mjög sáttir með þá aðstöðu sem er í boði til hreyfingar í Reykjanesbæ en segjast samt flestir vilja meira framboð og fjölbreyttari dagskrá. Niðurstöður sýndu einnig að forvsrasmenn íþróttafélagana sjá fyrir sér slíkt verkefni þar sem öll félög bæjarins gætu sameinað krafta sína. Bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ telja verkefnið nauðsinlegt bæði fyrir eldri borgara og íþróttafélögin. Lykilorð: Lýðheilsa, hreyfing, íþróttafélög og bæjaryfirvöld

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sindri Kristinn Ólafsson 1997-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/42884
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/42884

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sindri Kristinn Ólafsson 1997-. Lýðheilsa eldri borgara : íþróttafélög og bæjaryfirvöld í þágu eldri borgara. 2022. http://hdl.handle.net/1946/42884