Back to search

Reykjavík University

Hefur sjálfsálit áhrif á námsárangur framhaldsskólanemenda og samspil þess við vinnumarkaðinn?

Abstract

dc:description.abstract

Sjálfsálit, sjálfstraust og sjálfsmynd er mikilvægur þáttur þegar kemur að námsárangri og almennri líðan einstaklinga. Umræðan um mikilvægi sjálfsálits hefur farið vaxandi síðustu áratugi þar sem jákvætt sjálfsálit er talið vera tengt aukinni vellíðan og betri árangri í námi en þar á móti hefur neikvætt sjálfsálit öfug áhrif. Hætta er á, og rannsóknir hafa sýnt að lélegt viðhorf til sjálfs sín hafi neikvæðar afleiðingar á frammistöðu einstaklinga í námi og á vinnumarkaðinum. Menntun er undirstaða góðra lífskjara bæði fyrir einstaklinginn og samfélagið í heild sinni. Okkur fannst því mikilvægt að skoða hver raunveruleg áhrif sjálfsálits eru á námsárangur nemenda í framhaldsskóla á Íslandi og samspil þess við vinnumarkaðinn. Við framkvæmd rannsóknarinnar var notast við bæði megindlega og eigindlega rannsóknaraðferð. Megindlegi hlutinn var í formi spurningakönnunar sem send var á Facebook síður höfunda og helstu síður fyrir framhaldsskólanemendur. Eigindlegi hlutinn innihélt eina spurningu þar sem þátttakendur gátu tjáð sínar ástæður fyrir því að vera ekki í vinnu samhliða námi. Þátttakendur spurningakönnunarinnar voru 100 talsins. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að þeir einstaklingar sem voru með hátt sjálfsálit voru með hærri meðaleinkunn og öfugt. Jákvæð tengsl voru á milli sjálfsálit og almennri líðan, þeir einstaklingar sem voru með hátt sjálfsálit leið almennt betur sem nemenda í framhaldsskóla.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Guðrún Thelma Matthíasdóttir 1999-
  • Kolbrún Tinna Jónsdóttir 1998-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/41673
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/41673

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðrún Thelma Matthíasdóttir 1999-; Kolbrún Tinna Jónsdóttir 1998-. Hefur sjálfsálit áhrif á námsárangur framhaldsskólanemenda og samspil þess við vinnumarkaðinn?. 2022. http://hdl.handle.net/1946/41673