Back to search

Reykjavík University

Leiðtoginn á hliðarlínunni : hvað einkennir afreksþjálfara?

Abstract

dc:description.abstract

Útdráttur Í eftirfarandi ritgerð verður varpað ljósi á hvað það er sem einkennir afreksþjálfara í íþróttum. Hvaða sameiginlegu þættir það eru sem gera þá að afreksþjálfurum og hvað það er sem greinir þá frá þjálfurum sem hafa ekki náð sama árangri. Rannsóknin var framkvæmd frá hausti 2019 til vorsins 2021. Notast var við eigindlega rannsóknaraðferð þar sem hún var talin henta best til að svara rannsóknarspurningunni. Þátttakendur voru sex íslenskir afreksþjálfarar, fjórir handknattleiksþjálfarar og tveir knattspyrnuþjálfarar. Fjöldi rannsókna hefur verið gerður um hvað það er sem einkennir afreksíþróttafólk og þáttur þjálfara frekar skoðaður út frá þörfum íþróttafólksins og áhrif þeirra á það en hvað það er sem gerir þjálfarana sjálfa góða. Þættir sem virðast einkenna afreksþjálfara öðrum fremur eru djúp þekking á íþróttinni, en flestir hafa þeir sjálfir verið afreksfólk sem leikmenn, mikil geta til að miðla þeirri þekkingu, gríðarlegur metnaður og sigurvilji, góð skipulagning æfinga og geta til að greina leik andstæðinganna.Ekki síst leiðtogahæfni og áhersla á almenn mannleg gildi svo sem vinnusemi, heiðarleika, samvinnu og fórnfýsi sem eiga ekki síður við utan íþrótta. Lykilorð: Afreksþjálfarar, mannleg gildi, þekking, skipulag, leiðtogahæfni

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Marinó Ingi Adolfsson 1996-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/39256
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/39256

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Marinó Ingi Adolfsson 1996-. Leiðtoginn á hliðarlínunni : hvað einkennir afreksþjálfara?. 2021. http://hdl.handle.net/1946/39256